Fjallaskíðaferðir á Tröllaskaga og Huldulandi

Fjallaskíðaferð á Tröllaskaga og Huldulandi með Jökli Bergmann fjallaleiðsögumanni og Bergmenn Mountain Guides, einu faglærðu fjallaleiðsögumönnum Íslands

Tröllaskagi - Fjallaskíðun á heimsmælikvarða 6 daga ferð

Engar dagsetningar í boði.
Ekki er hægt að bóka ferð

  • Fjöldi 429.550.- kr.
Samtals 0.- kr.
Tröllaskagi er fjallaskíðasvæði á heimsmælikvarða. Fjölmargar skíðakvikmyndir hafa verið teknar þar upp og ótal greinar hafa birst um svæðið víðsvegar um heiminn. Tröllaskaginn er heimili Bergmanna sem bjóða upp á fjallaskíðaferðir með gistingu þar sem þú munt njóta einstakrar gestrisni á milli þess sem þú skíðar mögnuðustu brekkur landsins. 
 

Fjöllin á Tröllaskaganum bjóða upp á brekkur af öllum stærðum og gerðum og henta jafnvel fyrir þá sem eru að taka sínar fyrstu fjallaskíðabeygjur og þá sem vilja leita uppi brött gil til að skíða. Þér er boðið í heimsókn á Tröllaskagann þar sem við munum dvelja í kyrrlátum faðmi fjallana á milli þess sem við skíðum margar af fallegustu brekkum landsins. Dvölin í sveitinni er stór hluti af upplifuninni þar sem þér gefst kostur á að slaka vel á og njóta bæði magnaðrar matargerðar og hvíldar frá amstri hins daglega lífs. Í lok ferðarinnar er markmiðið að vera líkamlega þreyttur eftir frábæra skíðamennsku en þó endurnærður á líkama og sál. 

 
Hvað gerir þessa ferð svona magnaða?
 
  • Fjallaskíðasvæði á heimsmælikvarða
  • Alltaf nægur snjór fyrir þá sem vita hvar á að leita
  • Þjónusta og öryggi sem felst í því að ferðast með einu faglærðu fjallaleiðsögumönnum landsins
  • Persónuleg þjónusta sem miðar að því að gera þig að betri fjallaskíðamanni eða -konu
  • Alla vikuna ert þú að læra og bæta þig undir handleiðslu fagmanna
  • Dvölin í sveitinni, þér verður spillt með blöndu af Haute cuisine og íslensku sveitaeldhúsi
  • Fjöldin allur af góðum baðstöðum er á Tröllaskaga, ekkert er eins notalegt eftir góðan dag á fjöllum
  • Myndasýningar frá fjallaævintýrum hverskonar á kvöldin yfir góðu glasi fyrir þá sem vilja
 
Innifalið í verði
 
  • Gisting í uppbúnum rúmum í tveggja manna herbergjum
  • Allur matur frá kvöldverði á fyrsta degi til hádegisverðar á síðasta degi
  • Leiðsögn einu faglærðu fjallaleiðsögumanna landsins
  • Flutningur milli staða á meðan á dvöl stendur
  • Leiga á mannbroddum og jöklabúnaði
 
Ekki innifalið í verði
 
  • Leiga á útbúnaði öðrum en ofangreindum
  • Áfengir drykkir
  • Persónulegar slysatryggingar
Hugmynd að ferðaáætlun fyrir 7 daga ferð
 
Dagur 1
Koma á Tröllaskagann seinnipart dags til skrafs og ráðagerða með leiðsögumanninum. Eftir ljúffengan kvöldverð gefst kostur á að fara yfir útbúnaðinn og gera allt klárt fyrir fyrsta skíðadaginn eða skreppa í stutta kvöldgöngu í stórkostlegri náttúru Tröllaskagans.

Dagur 2
Eftir góða viðdvöl við morgunverðarborðið er haldið til fjalla. Á þessum fyrsta skíðadegi er tekin ítarleg snjóflóðaæfing þar sem allir fá að prófa snjóflóðaýlana og farið er yfir grunnatriði í mati á snjóflóðahættu og björgun úr snjóflóðum. Það eru margir sem vilja meina að Hesturinn í Skíðadal sé besta skíðabrekka á Íslandi...við komumst að því. 1150 skíðaðir fallmetrar niður í dal. Heitir pottar og kaldir drykkir í lok dags fyrir þá sem vilja.
 
Dagur 3
Það eru ekki margir staðir á láglendi á Íslandi þar sem hægt er að skíða allan ársins hring, en Karlsárdalur er einn af þeim. Þessi gríðarlega snjóakista er eins og hönnuð fyrir fjallaskíðafólk með óteljandi brekkum af öllum stærðum og gerðum. Heitu pottarnir á Dalvík teknir út í lok dags. 
 
Dagur 4
Gljúfurárjökull í Skíðadal er stærsti hvilftarjökull Tröllaskagans og jafnframt stórkostleg skíðabrekka. Við komumst í kynni við víðáttur hásléttunnar milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar þar sem ógrynni tinda rísa upp úr jökulþekjunni. 
 
Dagur 5 - 6                                  
Ókannaðar slóðir eru á dagskrá þessa daga, því sökum þess ógurlega fjölda fjalla sem prýða Tröllaskagann myndi einum manni ekki endast ævin til þess að skíða allar þær frábæru brekkur sem í boði eru. Okkar leiðsögumenn eru alltaf á höttunum eftir fyrstu niðurferð óskíðaðra tinda og þú nýtur góðs af því að þeir eru sérfræðingar í fjöllum Tröllaskagans.
 
Dagur 7
Einhverntíma verða öll ævintýri að enda, en þó ekki fyrr en síðustu fallmetrarnir hafa verið skíðaðir og síðasti tindur vikunnar sigraður. Við höldum heim á leið með þreytta leggi og bros á vor með plön fyrir næsta fjallaskíðaævintýri í kollinum.
 
 
Útbúnaðarlisti fyrir fjallaskíðaferð á Tröllaskaga
 
- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Skíðasokkar
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Skíðabuxur (Soft shell, flís)
- Flís- eða ullarpeysa
- Hanskar (2 pör, þykkir, þunnir)
- Húfa
- Bakpoki 30-40 lítra
- Vatnsflaska, minnst 1 líter
- Lítil sjúkrataska (hælsærisplástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu
- Skíðagleraugu
- Sólaráburður á andlit og varir
- Skíði (Fjallaskíði, Telemark eða split board)
- Skinn og skíðabroddar
- Skíðastafir
- Skíðaskór
- Skófla
- Snjóflóðastöng
- Snjóflóðaýlir
- Persónuleg drykkjarföng af sterkari gerðinni fyrir þá sem vilja
- Tannbursti og nauðsynlegt snyrtidót
- Myndavél
 
Mælt er með því að hver og enn taki með sér sinn eigin fjallaskíðabúnað og er sérlega mikilvægt að hafa með sér sína eigin fjallaskíðaklossa. Bergmenn bjóða þó upp á allan fjallaskíða- og snjóflóðaútbúnað til leigu á góðu verði. Um er að ræða skíði frá Völkl, Dalbello skó og Pieps snjóflóðaútbúnað. Hafðu samband og við græjum fyrir þig allt sem þarf.

Við viljum einnig benda á Fjallakofann fyrir þá sem vilja festa kaup á græjum, en þar er mesta úrval útbúnaðar og besta þekkingin á þessu sviði hér á Fróni.

Bergmenn Mountain Guides

Box 88 - 620 Dalvík
ICELAND
Sími 858 3000
info@bergmenn.com 

Subscribe to our newsletter

Don't miss out on a great deal, subscribe to our newsletter and get news and offers to your email

Follow us on ...