Jökulhásléttan milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar er engu lík í Íslenskri náttúru. Þetta víðáttumikla hálendi sem liggur um og yfir 1000m yfir sjávarmáli minnir helst á víðáttur Grænlands eða Suðurskautslandsins í smækkaðri mynd. Brattir tindar rísa tígulega uppúr jökulþekjunni sem breiðir úr sér hvert sem auga er litið. Markmið ferðarinnar er að rannsaka áður óskíðaðar lendur hásléttunnar útfrá fjallaskálanum á Tungnahrygg í 1200m. Þetta er sannkölluð fjallaferð. More
| Lengd ferðar: 4 dagar |
Verð: Verð fyrir 2010 í vinnslu
|
Ástæður þess að Íslendingar þekkja ekki vel til þessarar fjalla gersemar eru líklega fyrst og fremst þær að þangað komast fjórhjóladrifin ökutæki ekki og ekki óalgengt að finna eina eða tvær færslur á ári í gestabók Tungnahryggsskála. Ferðin hefst í Barkárdal þaðan sem skíðað er uppá Tungnahrygg í 1200m hæð. Við gistum tvær nætur í þessum litla en þægilega skála en höldum svo sem leið liggur niður í Skíðadal um Gljúfurárjökul og njótum gestrisni Önnu Dóru á Klængshóli. Síðasta dag ferðarinnar er svo tilvalið að skíða einhvern af þeim fjölmörgu tindum sem gnæfa yfir Skíðadalnum.
Hvað gerir þessa ferð svona magnaða?
- Heimsókn á magnþrungið svæði með það að markmiði að skíða áður óskíðaða tinda
- Dvölin í Tungnahrygsskála sem er staðsettur á miðri jökulhásléttunni
- Möguleikinn á að skíða leið sem aldrei hefur verið farin áður
- Þjónusta og öryggi sem felst í því að ferðast með faglærðum fjallaleiðsögumanni
- Persónuleg þjónusta sem miðar að því að gera þig að betri skíða og fjallamanni
- Dvölin á Klængshóli hjá Önnu Dóru húsfreyju sem gerspillir gestum með gómsætum kræsingum
Innifalið í verði
- Gisting í Tungnahryggsskála í 2 nætur og á Klængshóli í 1 nótt
- Allur matur frá kvöldverði á fyrsta degi til hádegisverðar á síðasta degi
- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns alla ferðina
- Far til baka í Barkárdal til að sækja ökutæki á síðasta degi
Ekki innifalið í verði
- Leiga á útbúnaði
- Áfengir drykkir
- Tryggingar
Ferðaáætlun
Dagur 1
Hópurinn hittist við Baugasel í Barkárdal kl 0800. Farið verður yfir útbúnað og matarbirgðum dreift á mannskapinn. Væntanlega þarf að axla skíðin fyrsta spölinn inn dalinn en svo léttist gangurinn til muna þegar skíðin eru komin á fæturna. Eftir rólega uppgöngu er komið í skálann á Tungnahrygg og tækifæri til að renna sér. Kjarngóður kvöldmatur að hætti hússins, kertaljós og spjall um möguleika morgundagsins.
Dagur 2
Skíðað með léttan dagpoka um víðáttur Tungnahryggs hásléttunnar. Við rannsökum hvern krók og kima, engin brekka er óhult fyrir okkur. Gist á Tungnahrygg.
Dagur 3
Ferðinni er heitið ofaní Skíðadal með viðkomu á Gljúfurárjökli, stærsta hvilftarjökli Tröllaskaga og margrómaðri skíðabrekku. Eftir magnaða fjalladaga er kærkomið að komast í sturtu, kræsingar og uppábúið rúm á Klængshóli.
Dagur 4
Það eru margir sem vilja meina að Hesturinn í Skíðadal sé besta skíðabrekka á Íslandi.......við komumst að því, 1150 skíðaðir fallmetrar beint heim í hlað á Klængshóli. Eftir hádegi er komin tími til að halda heim á leið, sæl og þreytt eftir magnað fjallaskíðaævintýri.
Útbúnaðarlisti fyrir fjallaskíðaferð á Tungnahryggsjökul
- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Skíðasokkar 2 pör
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Skíðabuxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Hanskar (2 pör,þykkir,þunnir)
- Húfa
- Bakpoki 45-60 lítra
- Vatnsflaska, minnst 1 líter
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu
- Skíðagleraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Skíði (Fjallaskíði, Telemark eða split board)
- Skinn og skíðabroddar
- Skíðastafir
- Skíðaskór
- Skófla
- Snjóflóðastöng
- Snjóflóðaýlir
- Persónuleg drykkjarföng af sterkari gerðinni fyrir þá sem vilja
- Þunnur lakpoki til að sofa í (Það eru þykk ullarteppi í skálanum í stað svefnpoka)
- Tannbursti og nauðsynlegt snyrtidót
- Myndavél
- Höfuðljós
Sumt af þessum búnaði er hægt að fá leigt hjá Bergmönnum eða hjá Fjallakofanum í Hafnarfirði, sími 510 9505. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi búnaðarval þá ekki hika við að hafa samband.