Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Dags og helgarferðir Bergmenn bjóða þér uppá úrval dags og helgar fjallaskíðaferða fyrir hópa og einstaklinga. Þessar ferðir eru sérsniðnar að væntingum

Bókun

Dags og helgarferðir

Bergmenn bjóða þér uppá úrval dags og helgar fjallaskíðaferða fyrir hópa og einstaklinga. Þessar ferðir eru sérsniðnar að væntingum og reynslu hvers hóps með það eitt í huga að upplifunin sé ógleymanleg. Nokkur frábær fjöll sem vert er að skoða eru t.d Hvannadalshnúkur, Snæfellsjökull, Hekla, Botnsúlur, Skarðsheiði og svo mætti lengi telja Hvað er betra eftir langa og stranga uppgöngu en að renna sér áreynslu laust með bros á vör til baka. Þessar ferðir eru einnig stórsniðugar fyrir þá sem vilja læra á fjallaskíði áður en haldið er af stað í stærri túra.

Sendu okkur línu og segðu okkur hvert þú villt fara og við gerum draumaferðina þína að veruleika.

Bergmenn bjóða uppá allann fjallaskíða og snjóflóða útbúnað til leigu á góðu verði. Um er að ræða nýjustu Black Diamond skíði, Scarpa skó og Pieps snjóflóðaútbúnað. Hafðu samband og við græjum fyrir þig allt sem þarf.

Bendum einnig á Fjallakofann í Hafnarfirði fyrir þá sem vilja festa kaup á græjum, en þar er mesta úrval útbúnaðar og best þekking á þessu sviði hér á Fróni.





Mynd augnabliksins

matterhorn7.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf