Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Tröllaskagi - Fjallaskíðun á heimsmælikvarða 7 daga ferð Það er engin tilviljun að á Tröllaskaga hafa verið teknar upp 4 skíðakvikmyndir og fjöldi greina

Bókun

Tröllaskagi - Fjallaskíðun á heimsmælikvarða 7 daga ferð

Það er engin tilviljun að á Tröllaskaga hafa verið teknar upp 4 skíðakvikmyndir og fjöldi greina birst um svæðið víðsvegar um heiminn. Þetta er einfaldlega vegna þess að Tröllaskaginn er fjallaskíðasvæði á heimsmælikvarða. Bergmenn bjóða uppá mislangar ferðir á þessu svæði sem þó allar eiga það sameiginlegt að vera gerðar út frá Klængshóli í Skíðadal þar sem þú munt njóta einstakrar gestrisni á milli þess sem þú skíðar mögnuðustu brekkur landsins. Meira

 
Lengd ferðar: 7 dagar
Verð: 197.000.- ISK
Fjöllin á Tröllaskaganum bjóða uppá brekkur af öllum stærðum og gerðum og henta jafnvel, hvort sem að þú ert að taka þínar fyrstu fjallaskíðabeygjur eða í leit að brattasta gilinu. Þér er boðið í heimsókn á Tröllaskagann þar sem að við munum dvelja í kyrrlátum faðmi fjallana á milli þess sem að við skíðum margar af fallegustu brekkum landsins. Dvölin í sveitinni er stór hluti af upplifuninni þar sem að þér gefst kostur á að slaka vel á og njóta bæði magnaðrar matargerðar og hvíldar frá amstri hins daglega lífs. Í lok ferðarinnar er markmiðið að vera fullkomnlega líkamlega þreyttur eftir frábæra skíðamennsku en þó elgerlega endurnærður á líkama og sál. 

Hvað gerir þessa ferð svona magnaða?

  • Fjallaskíðasvæði á heimsmælikvarða
  • Alltaf nægur snjór fyrir þá sem vita hvar á að leita
  • Þjónusta og öryggi sem felst í því að ferðast með einu faglærðu fjallaleiðsögumönnum landsins
  • Persónuleg þjónusta sem miðar að því að gera þig að betri fjallaskíðamanni eða konu
  • Alla vikuna ert þú að læra og bæta þig undir handleiðslu fagmanna
  • Dvölin í sveitinni, þér verður spillt með blöndu af Haute cuisine og íslensku sveita eldhúsi
  • Fjöldin allur af góðum baðstöðum er á Tröllaskaga, ekkert eins notalegt eftir góðan dag á fjöllum
  • Myndasýningar frá fjallaævintýrum hverskonar á kvöldin yfir góðu glasi fyrir þá sem vilja

Innifalið í verði

  • Gisting í uppábúnum rúmum í tveggja manna til fjögra manna herbergjum
  • Allur matur frá kvöldverði á fyrsta degi til hádegisverðar á síðasta degi
  • Leiðsögn einu faglærðu fjallaleiðsögumanna landsins
  • Leiga á mannbroddum og jöklabúnaði

Ekki innifalið í verði

  • Akstur. þátttakendur nota eigin bíla og þurfa að gera ráð fyrir plássi fyrir leiðsögumann
  • Leiga á útbúnaði öðrum en ofangreindum
  • Áfengir drykkir
  • Persónulegar slysatryggingar
Ferðaáætlun fyrir 7 daga ferð
 

Dagur 1
Koma á Tröllaskagann seinnipart dags til skrafs og ráðagerða með leiðsögumanninum. Eftir ljúfengan kvöldverð gefst kostur á að fara yfir útbúnaðinn og gera allt klárt fyrir fyrsta skíðadaginn eða skreppa í smá kvöldgöngu í stórkostlegri náttúru Tröllaskaganns.

Dagur 2
Eftir góða viðdvöl við morgunverðar hlaðborðið er haldið til fjalla. Á þessum fyrsta skíðadegi er tekin ýtarleg snjóflóða æfing þar sem að allir fá að prófa snjóflóðaýlana og farið er yfir grunnatriði í mati á snjóflóðahættu og björgun úr snjóflóðum. Það eru margir sem vilja meina að Hesturinn í Skíðadal sé besta skíðabrekka á Íslandi......við komumst að því. 1150 skíðaðir fallmetrar beint heim á hlað á Klængshóli. Heitir pottar og kaldir drykkir í lok dags fyrir þá sem vilja.

Dagur 3
Það eru ekki margir staðir á láglendi á Íslandi þar sem að hægt er að skíða allan ársins hring, en Karlsárdalur er einn af þeim. Þessi gríðarlega snjóakista er eins og hönnuð fyrir fjallaskíðafólk með óteljandi brekkum af öllum stærðum og gerðum. Heitu pottarnir á Dalvík teknir út í lok dags.

Dagur 4
Gljúfurárjökull í Skiðadal er stærsti hvilftarjökull Tröllaskagans og jafnframt stórkostleg skíðabrekka. Við komumst í kynni við víðáttur hásléttunnar milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar þar sem ógrynni tinda rísa uppúr jökulþekjunni. 

Dagur 5 - 6                                  
Ókannaðar slóðir eru á dagskrá þessa daga, því sökum þess ógurlega fjölda fjalla sem príða Tröllaskagann, myndi einum manni ekki endast ævin til þess að skíða allar þær frábæru brekkur sem í boði eru. Okkar leiðsögumenn eru alltaf á höttunum eftir fyrstu niðurferð óskíðaðra tinda og þú nýtur góðs af því að þeir eru einu sérfræðingarnir í fjöllum Tröllaskagans.

 Dagur 7
Einhverntíman verða öll ævintýri að enda, en þó ekki fyrr en síðustu fallmetrarnir hafa verið skíðaðir og síðasti tindur vikunnar sigraður. Við höldum heim á leið með þreytta leggi og bros á vor með plön fyrir næsta fjallaskíðaævintýri í kollinum.




Útbúnaðarlisti fyrir fjallaskíðaferð á Tröllaskaga

- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Skíðasokkar
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Skíðabuxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Hanskar (2 pör,þykkir,þunnir)
- Húfa
- Bakpoki 30-40 lítra
- Vatnsflaska, minnst 1 líter
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu
- Skíðagleraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Skíði (Fjallaskíði, Telemark eða split board)
- Skinn og skíðabroddar
- Skíðastafir
- Skíðaskór
- Skófla
- Snjóflóðastöng
- Snjóflóðaýlir
- Persónuleg drykkjarföng af sterkari gerðinni fyrir þá sem vilja
- Tannbursti og nauðsynlegt snyrtidót
- Myndavél

Bergmenn bjóða uppá allann fjallaskíða og snjóflóða útbúnað til leigu á góðu verði. Um er að ræða nýjustu Black Diamond skíði, Scarpa skó og Pieps snjóflóðaútbúnað. Hafðu samband og við græjum fyrir þig allt sem þarf.

Bendum einnig á Fjallakofann í Hafnarfirði fyrir þá sem vilja festa kaup á græjum, en þar er mesta úrval útbúnaðar og best þekking á þessu sviði hér á Fróni.




Mynd augnabliksins

1225622864_resizedsign.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf