Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Hvannadalshnúkur Það verður að teljast skylduverkefni hvers Íslensks fjallamanns og konu að ganga á Hvanndalshnúk því hvert land á sér nú bara einn hæsta

Bókun

Hvannadalshnúkur

Það verður að teljast skylduverkefni hvers Íslensks fjallamanns og konu að ganga á Hvanndalshnúk því hvert land á sér nú bara einn hæsta tind. Gangan á Hvannadalshnúk er löng og reynir á þrek og úthald þótt hún teljist ekki til tæknilegs klifurs. Útsýni er óvíða fegurra þar sem við hafinu taka svartir sandar sem síðan mæta fjöllum og jöklum Öræfasveitar. Einstök upplifun og mögnuð jöklaferð. Meira

Lengd ferðar: 1 dagur 
Dagsetningar: Apríl - Ágúst
Verð: 29.990.- ISK á mann miðað við 6 manna hóp

Bergmenn eru eina fyrirtækið á Íslandi sem bíður uppá ferðir á Hvannadalshnúk undir leiðsögn faglærðra fjallaleiðsögumanna. Bergmenn hámarka einnig fjölda fólks í hverri ferð við tvo hópa samtals 12 manns með tveimur fjallaleiðsögumönnum. Þetta þíðir að þú hámarkar líkurnar á að ná toppnum, færð persónulega, örugga og góða þjónustu og þarft ekki að óttast biðraðir né endalausa halarófu fólks á leið þinni á toppinn. 

Tvær uppgönguleiðir eru í boði, Sandfellsleið eða Virkisjökulsleið. Gera má ráð fyrir að ganga á Hvannadalshnúk taki á milli 12-14 klst enda um 2000m hækkun yfir tæplega 25km leið að ræða. Galdurinn við þessa fjallgöngu er jafn og hægur göngutaktur með fáum og stuttum stoppum og svo auðvitað að hafa æft sig vel mánuðina á undan. Best er fyrir þátttakendur að vera mættir í Öræfasveit tímanlega daginn fyrir brottför til þess að hitta leiðsögumanninn sinn, ganga frá útbúnaði og svo auðvitað til þess að ná góðri hvíld fyrir stóra daginn. Lagt er af stað á tímabilinu miðnætti til um kl 0400 um morguninn,  allt eftir veðri og aðstæðum hverju sinni. 

Innifalið í verði:

- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns
- Leiga á jöklagöngu útbúnaði
- Neyðarskýli, skyndihjálparútbúnaður 

Ekki innifalið í verði:

- Ferðir til og frá Öræfasveit
- Gisting og matur
- Persónuleg slysatrygging

Útbúnaðarlisti fyrir ferð á Hvannadalshnúk

- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Buxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Auka peysa eða létt úlpa 
- Húfa
- Derhúfa eða sólhattur
- Hanskar eða vetlingar (Tvö pör)
- Göngusokkar
- Gönguskór (Vel tilgengnir, þægilegir og vatnsvarðir)
- Göngustafir - Skíðastafir
- Legghlífar
- Bakpoki 25-35 lítra
- Vatnsflöskur, minnst 1.5-2 lítrar
- Nesti fyrir daginn (Frekar marga orkumikla litla bita heldur en stórar samlokur)
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu (Góð sólgleraugu sem ætluð eru fyrir sól og snjó)
- Skíðagleraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Myndavél

Sumt af þessum búnaði er hægt að fá leigt hjá Bergmönnum eða hjá Fjallakofanum í Hafnarfirði 5109505. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi búnaðarval þá ekki hika við að hafa samband.

Mynd augnabliksins

ic09ski069emb.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf