Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Kerlingareldur Í fjallinu Kerlingu í Svarfaðardal leynist tæplega 200 metra klettastál sem hlotið hefur nafnið Kerlingareldur. Kerlingareldur er nánast

Bókun

Kerlingareldur

Í fjallinu Kerlingu í Svarfaðardal leynist tæplega 200 metra klettastál sem hlotið hefur nafnið Kerlingareldur. Kerlingareldur er nánast óþekkt fyrirbæri hjá hinum almenna fjallamanni hér á Fróni en fyrir þá sem stunda tæknilegt fjalla og klettaklifur er þetta ein flottasta klifurleið sem í boði er á landinu. Nauðsynlegt er að hafa einhverja reynslu af klettaklifri og hafa farið með okkur í aðra túra eða námskeið áður en lagt er í þetta stórvirki. Meira 

Lengd ferðar: 1 dagur 
Dagsetningar: Júní - September
Verð: 55.000,- ISK fyrir 1 eða 35.000,- ISK á mann fyrir 2

Kerlingareldurinn var fyrst klifinn árið 1997 af Jökli Bergmann og Stefáni Smárasyni og var ekki endurtekin fyrr en sex árum síðar. Í dag hafa aðeins átta hópar klifrara náð tindinum og hefur Jökull Bergmann leitt sex þeirra, en mun fleiri hafa mátað sig við leiðina án árangurs. Leiðin er ein stórglæsilegasta fjalla-klettaklifursleið landsins í stórkostlegu umhverfi Tröllaskagans með útsýni norður til Grímseyjar og suður á Jökla.

Innifalið í verði:
- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns
- Leiga á klifurútbúnaði 

Útbúnaðarlisti fyrir Kerlingareld

- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Buxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Húfa
- Gönguskór (Stífir gönguskór henta betur en mjúkir)
- Bakpoki 25-35 lítra
- Vatnsflaska, minnst 1 líter
- Nesti fyrir daginn
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Myndavél
- Höfuðljós (Eftir árstíma)

Sumt af þessum búnaði er hægt að fá leigt hjá Bergmönnum eða hjá Fjallakofanum í Hafnarfirði 5109505. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi búnaðarval þá ekki hika við að hafa samband.



Mynd augnabliksins

jiaweb22.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf