Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Hrútsfjallstindar Hrútsfjallstindar í Öræfasveit eru mikið augnayndi þar sem þeir rísa tæpa 1700 metra uppyfir Svínafellsjökli vestan Öræfajökuls og

Bókun

Hrútsfjallstindar

Hrútsfjallstindar í Öræfasveit eru mikið augnayndi þar sem þeir rísa tæpa 1700 metra uppyfir Svínafellsjökli vestan Öræfajökuls og Hvannadalshnúks. Það er rökrétt framhald af Hnúksferð eða góður undirbúningur að klífa Hrútsfjallstinda. Nokkrar leiðir eru í boði á Hrútsfjallstinda en í þessari ferð er ein af þeim auðfarnari í boði en ekki sjálfur suðurveggurinn með sínum 1700 metrum af hörku klifri. Tæknilegir erfiðleikar eru svipaðir þeim sem fyrirfinnast á Hvannadalshnúk og því fært flestum í góðu líkamlegu formi á Hrútsfjallstinda. Meira

Lengd ferðar: 1 dagur 
Dagsetningar: Apríl - Ágúst
Verð: 22.500,- ISK á mann miðað við 8 manna hóp

Bergmenn eru eina fyrirtækið á Íslandi sem bíður uppá ferðir á Hrútsfjallstinda undir leiðsögn faglærðra fjallaleiðsögumanna. Bergmenn hámarka einnig fjölda fólks í hverri ferð við tvo hópa samtals 16 manns með tveimur fjallaleiðsögumönnum. Þetta þíðir að þú hámarkar líkurnar á að ná toppnum og færð persónulega, örugga og góða þjónustu. 

Best er fyrir þátttakendur að vera mættir í Öræfasveit tímanlega daginn fyrir brottför til þess að hitta leiðsögumanninn sinn, ganga frá útbúnaði og svo auðvitað til þess að ná góðri hvíld fyrir stóra daginn. Lagt er af stað á tímabilinu miðnætti til um kl 0400 um morguninn,  allt eftir veðri og aðstæðum hverju sinni. 

Innifalið í verði:

- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns
- Leiga á jöklagöngu útbúnaði
- Neyðarskýli, skyndihjálparútbúnaður 

Ekki innifalið í verði:

- Ferðir til og frá Öræfasveit
- Gisting og matur
- Persónuleg slysatrygging

Útbúnaðarlisti fyrir ferð á Hrútsfjallstinda

- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Buxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Auka peysa eða létt úlpa 
- Húfa
- Derhúfa eða sólhattur
- Hanskar eða vetlingar (Tvö pör)
- Göngusokkar
- Gönguskór (Vel tilgengnir, þægilegir og vatnsvarðir)
- Göngustafir - Skíðastafir
- Legghlífar
- Bakpoki 25-35 lítra
- Vatnsflöskur, minnst 1.5-2 lítrar
- Nesti fyrir daginn (Frekar marga orkumikla litla bita heldur en stórar samlokur)
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu (Góð sólgleraugu sem ætluð eru fyrir sól og snjó)
- Skíðagleraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Myndavél

Sumt af þessum búnaði er hægt að fá leigt hjá Bergmönnum eða hjá Fjallakofanum í Hafnarfirði 5109505. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi búnaðarval þá ekki hika við að hafa samband.

Mynd augnabliksins

breithorn91.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf