Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Hvannadalshnúkur - Lengsta brekka landsins Það er ekki spurning að það er ekkert vit í öðru en að fara á Hvannadalshnúk á fjallaskíðum, enda er þetta nú

Bókun

Hvannadalshnúkur - Lengsta brekka landsins

Það er ekki spurning að það er ekkert vit í öðru en að fara á Hvannadalshnúk á fjallaskíðum, enda er þetta nú lengsta skíðabrekka á Íslandi. Við skíðum að öllum líkindum Virkisjökuls eða Svínafellsjökuls leið, báðar alveg stórkostlegar skíðabrekkur umkringdar einhverju hrikalegasta landslagi sem fyrirfinnst á okkar stórbrotna landi. Falljöklar steypast fram af brún Öræfajökuls og tignarlegir tindar eins og Dyrhamar, Kirkja og Hrútsfjallstindar gnæfa uppúr Jökulþekjunni. Eftir stórkostlegan skíðadag njótum við þess að slaka á í heita pottinum á Svínafelli og í þægilegri gistingu og "apre ski" á Hótel Skaftafelli. Meira 

Lengd ferðar: 2 dagar 
Dagsetningar: Mars - Maí
Verð: 79.900.- ISK

Bergmenn eru eina fyrirtækið á Íslandi sem bíður uppá ferðir á Hvannadalshnúk undir leiðsögn faglærðra fjallaleiðsögumanna. Bergmenn hámarka einnig fjölda fólks í hverri ferð við tvo hópa samtals 16 manns með tveimur fjallaleiðsögumönnum. Þetta þíðir að þú hámarkar líkurnar á að ná toppnum, færð persónulega, örugga og góða þjónustu og þarft ekki að óttast biðraðir né endalausa halarófu fólks á leið þinni á toppinn. 

Tvær skíða leiðir eru í boði, Virkisjökulsleið eða Svínafellsjökulsleið. Gera má ráð fyrir að ganga á Hvannadalshnúk og niður skíðun taki á milli 9-11 klst enda um 2000m hækkun að ræða. Galdurinn við þessa fjallgöngu er jafn og hægur göngutaktur með fáum og stuttum stoppum og svo auðvitað að hafa æft sig vel mánuðina á undan.

Ferðatilhögun:

Mæting í Hótel Skaftafell í Öræfasveit kvöldið fyrir brottför þar sem að leiðsögumaðurinn hittir þátttakendur, fer yfir búnað og svarar spurningum. Morgunin eftir er lagt af stað snemma, eða á milli klukkan 03:00 og 06:00 allt eftir aðstæðum og veðri hverju sinni. Gangan upp tekur um 8 klst en svo tekur við lengsta skíðabrekka landsins með tilheyrandi fjöri. Á uppgöngunni er gengið á skíðunum lang leiðina en oftast þarf að ganga á mannbroddum í upphafi yfir skriðjöklana. Þegar niður er komið skellum við okkur í heitu pottana að Svínafelli og svo "apre ski" og góðan kvöldverð að Hótel Skaftafelli þar sem að við fögnum afrekum dagsins.


Innifalið í verði:

- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns
- Gisting á Hótel Skaftafelli í tveggja manna herbergjum í 2 nætur með morgunverði
- Nesti á toppadegi
- Kvöldverður seinna kvöldið
- Heitir pottar eftir túrinn
- Leiga á mannbroddum, ísexi og öðrum jöklagöngu útbúnaði
- Afnot af Neyðarskýli, skyndihjálparútbúnaði og fjarskiptum

Ekki innifalið í verði:

- Ferðir til og frá Öræfasveit
- Persónuleg slysatrygging

Útbúnaðarlisti fyrir ferð á Hvannadalshnúk

- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Buxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Auka peysa eða létt úlpa 
- Húfa
- Derhúfa eða sólhattur
- Hanskar eða vetlingar (Tvö pör - Þykkir, þunnir)
- Skíðasokkar
- Fjallaskíða, Telemark eða Snjóbretta skór
- Fjallaskíði, Telemark eða Split Board og stafir
- Snjóflóðaýlir, Skófla og snjóflóðastöng
- Bakpoki 30-45 lítra
- Vatnsflöskur, minnst 1.5-2 lítrar
- Nesti fyrir daginn (Frekar marga orkumikla litla bita heldur en stórar samlokur)
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu (Góð sólgleraugu sem ætluð eru fyrir sól og snjó)
- Skíðagleraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Myndavél

Sumt af þessum búnaði er hægt að fá leigt hjá Bergmönnum eða hjá Fjallakofanum í Hafnarfirði 5109505. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi búnaðarval þá ekki hika við að hafa samband.

Mynd augnabliksins

huld7.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf