Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Haute Route - Fjallaskíðaferð Þessi heimsfræga leið milli tveggja þekktustu fjallaþorpa Alpana er í senn krefjandi og ógleymanleg upplifun. Á sex dögum er

Bókun

Haute Route - Fjallaskíðaferð

Þessi heimsfræga leið milli tveggja þekktustu fjallaþorpa Alpana er í senn krefjandi og ógleymanleg upplifun. Á sex dögum er skíðað í gegnum eitthvert stórbrotnasta landslag Evrópsku Alpana þar sem að hver 4000m tindurinn á fætur öðrum blasir við, Matterhorn, Mont Blanc og Dent Blanche eru nöfn sem margir þekkja og í þessari ferð komumst við í návígi við þessa risa. En það sem að gerir Haute Route að frægustu fjallaskíðaleið heims er ekki hvað síst sú samblanda af villtri náttúru og þeirri mögnuðu fjallamenningu sem einkennir Alpana. Skálaupplifunin er stór hluti ferðarinnar, þar sem við hittum annað fjallaskíðafólk víðsvegar að úr heiminum og fögnum góðum dögum.



 
Lengd ferðar: 9 dagar
 Verð: 329.000.- ISK á mann fyrir 5-6 farþega

 Ferðalýsing

Dagur 1:
Mæting til Chamonix þar sem við hittumst, förum yfir planið, leiðsögumaðurinn fer yfir búnað og græjar það sem ekki er klárt hjá mannskapnum og svo höfum við tækifæri til að kíkja í bæinn og skoða okkur um.

Dagur 2:
Upphitunardagurinn mikli. Við skíðum að öllum líkindum Vallee Blanche í Chamonix eftir að hafa tekið kláfinn uppá Aig’d Midi í 3842m. Þetta er fínasta hæðaraðlögun og svo skemmir ekki fyrir að geta rennt sér að öllum líkindum alla leið til Chamonix rétt rúma 3000 metra af skíðun. Um kvöldið snæðum við saman í Chamonix og göngum frá öllum lausum endum fyrir sjálfan túrinn.

Dagur 3:
Leggjum snemma í hann til Argentiére þaðan sem við tökum Grand Montets lyftuna uppí 3500m hæð. Við tekur fínasta rennsli niður á Argentiére jökulinn og svo brött uppferð uppá Trient hásléttuna þar sem við gistum í hinum margrómaða Trient skála í 3170m.

Dagur 4:
Það eru margir sem vilja meina að besta skíðuninn á Haute Route sé frá Trient skálanum og niður til Champex og það er kannski ekki langt frá lagi. Frá Champex þorpinu tökum við taxa til Verbier skíðasvæðisins þaðan sem við náum til Mont Fort skálans sem er innan þessa heimsfræga skíðasvæðis.

Dagur 5:
Frá Mont Fort skálanum klifrum við Rosablanche 3386m og rennum okkur svo niður til Prafleurie skálans sem liggur í 2980m hæð, þetta er nýr og stórskemmtilegur skáli í mögnuðu umhverfi.

Dagur 6:
Við byrjum daginn á stuttu klifri uppí Col de Roux skarðið og skíðum svo niður að Lac des Dix stífluvatninu. Höldum svo sem leið liggur meðfram vatninu og uppí Dix skálann í 2928m

Dagur 7:
Í dag skíðum við einn af hápunktum ferðarinnar Pigne d’Arrolla 3796m. Á björtum degi sést til allra átta og flestir af hæstu tindum alpana svo sem Mont Blanc, Matterhorn, Dent Blanche og hundruðir annarra blasa við. Við skíðum svo niður í Vignettes skálann í 3194m.

Dagur 8:
Stærsti dagur ferðarinnar án nokkurs vafa og jafnframt sá flottasti. Við skíðum yfir 30km, gegnum 3 stór fjallaskörð, yfir 7 jökla og endum á að renna okkur niður fram hjá norðurveggnum á hinu víðfræga Matterhorn alla leið til Zermatt. Þennan turbo dag skíðum við 1100m upp og tæpa 2500m niður.
Þegar við komum til Zermatt smellum við okkur á eitt nett Apre Haute Route Ski og í kærkomið steypibað á hótelinu í Zermatt.

Dagur 9:
Þessi dagur er til vara ef ske kynni að við verðum stopp einhversstaðar á leiðinni og þurfum að sitja af okkur storm í cozy fjallaskála yfir rjúkandi drykk eða þá norpandi útí stórhríðinni……..já þetta er jú ævintýri sem allir verða að undirbúa sig fyrir bæði andlega og líkamlega. Ef allt gengur að óskum og menn og konur eru í ástandi þá getur þessi dagur nýst vel til off piste leiðangurs í nágrenni  Zermatt.



 Frekari upplýsingar

Innifalið í verði:

Leiðsögn faglærðra UIAGM fjallaleiðsögumanna alla ferðina (Hámark 6 farþegar per leiðsögumann)
Gisting 1 nótt á hóteli í Chamonix með kvöldmat og morgunmat
Gisting 1 nótt á hóteli í Zermatt með morgunmat
Gisting 5 nætur í fjallaskálum með morgunmat og kvöldmat
Allar kláf, lyftuferðir og annað transport milli Chamonix og Zermatt

Ekki innifalið í verði:

Ferðir til og frá Chamonix og Zermatt
Hádegis nesti og annað snarl í skálunum.
Drykkir svo sem flösku vatn og aðrir drykkir í skálunum
Aukanótt og matur í skála fyrir vara daginn
Tryggingar
Útbúnaðarleiga


Greiðsluskilmálar

30% af heildarverði ferðar á mann greiðist við bókun en eftirstöðvarnar ekki síðar en 90 dögum fyrir brottför. Sjá greiðsluskilmála Bergmanna.

Matur og Gisting


Í Chamonix gistum við á Hóteli í miðbænum þaðan sem stutt er í allar lyftur, búðir og almenningssamgöngur. Við munum snæða kvöldverð og morgunmat á Hótelinu áður en við leggjum í ferðina. Skálarnir bjóða allir uppá veitinga og bar þjónustu ásamt því sem þar er hægt að kaupa helstu nauðsynjar eins og t.d súkkulaði, vatn o.f.l Kvöldverðir eru yfirleitt þrírétta, súpa, kjötréttur og desert en morgunverðurinn er öllu lítilfjörlegri, yfirleitt þurrt brauð, sulta og kaffibolli. Gistingin er í kojum í misstórum herbergjum, yfirleitt 8-24 manna. Nauðsynlegt er að vera með þunnan lakpoka til að sofa í en skálarnir eru allir með sængum, teppum og koddum. Sturtur er aðeins að finna í einum af skálunum.
Hádegisnesti verður hver og einn að taka með sér fyrir alla ferðina. Best er að vera með sambland af orkustykkjum, súkkulaði, osti og pylsum því samlokur endast illa í þetta löngum túr. Einnig er eins og áður sagði hægt að kaupa heita smárétti í flestum skálanna ásamt öðru snarli en þetta er þó eitthvað sem ekki er hægt að gera ráð fyrir. Í Zermatt gistum við aftur eina nótt á hóteli.

Líkamleg geta, þrek og þor:

Haute Route leiðin þótt vinsæl sé er ekki gefins hvorki líkamlega né andlega. Við klifrum 800-1200m eða 4-6 klst upp á hverjum degi í 6 daga með bakpoka sem kemur til með að vega 6-10kg. Það er því nauðsynlegt að fólk sé í góðu líkamlegu formi og hafi reynslu af nokkurra daga fjallaskíðaferðum við misjafnar aðstæður. Fólk þarf einnig að geta skíðað í mjög misjöfnu færi, ís, skara, púðri, og krapa með bakpoka. Góð grunn kunnátta á almennri fjallaskíðatækni, svo sem spark beygjum, skíðabrodda notkun, skinna umhirðu, snjóflóðaleit og almennri vetrarfjallamennsku er forsenda fyrir vel heppnaðri Haute Route ferð. Fyrir þá sem ekki hafa farið í nokkurra daga fjallaskíðaferð mælum við sterklega með 2 daga crash course á Tröllaskaganum áður en lengra er haldið.

Búnaður:

Best er að allir þátttakendur séu með sinn eigin búnað sem þeir eru vanir að nota og vita að virkar. Annars er hægt að leigja allan sérhæfðan fjallaskíðabúnað hjá Bergmönnum eða í Chamonix. Skoðið meðfylgjandi útbúnaðarlista vel og munið að rétt val á útbúnaði getur skipt sköpum um hvort ferðin er vel heppnuð eða ekki. Það sem helst þarf að huga að er léttleiki og styrkur, í svona langri ferð þar sem að þú skíðar með allt á bakinu skiptir hvert gram máli, t.d saga tannburstann í tvennt, taka bara 30cm af tannþráði o.s.f.v

Útbúnaðarlisti fyrir Haute Route


Mynd augnabliksins

huld5.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf