Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Austfjarðaævintýrið 2011 Mögnuð tilraunaferð á óskíðaða tinda Austfirsku Alpanna þar sem við könnum svæði sem enginn hefur áður rennt sér. Þetta er hin

Bókun

Austfjarðaævintýrið 2011

Mögnuð tilraunaferð á óskíðaða tinda Austfirsku Alpanna þar sem við könnum svæði sem enginn hefur áður rennt sér. Þetta er hin árvissa landkönnunarferð Bergmanna. En eins og margir vita, þá hafa Bergmenn opnað augu fólks fyrir mörgum fjallaskíðaperlum á undanförnum árum má þar nefna Jökulfirði, Hulduland, Haute Route Tröllanna og svo á síðasti ári var Norðanvert Hulduland kannað í samstarfi við Norðursiglingu á Húsavík.

Markmið okkar er að kortleggja bestu fjallaskíðasvæði Austfjarða og mun leið okkar m.a liggja í Borgarfjörð, Seyðisfjörð, Reyðarfjörð, Oddsskarð og svo mætti lengi telja. Þar sem að um algjörann könnunarleiðangur er að ræða, þá mun hirðljósmyndari Bergmanna hann Guðmundur Tómasson vera með í för og festa ævintýrið á filmu. Þessi ferð er á sérstökum landkönnunar kjörum enda lofum við engu nema ótakmörkuðu fjöri, uppgötvunum og samskiptum við stórskemmtilega Asutfirðinga.

Lengd ferðar: 5 dagar - 23 til 27 mars 2011
Verð: 110.000.- ISK á mann
   
Áætlað ferðaplan:

Dagur 1:
Hittingur á Akureyri fyrir þá sem eru norðan heiða, eldsnemma dags og brunað á Eskifjörður,Bergmenn,fjallaskíðaferðir
Egilsstaði. Sunnlendingar geta flogið með fyrstu vél á Egilsstaði og hitt hópinn þar.
Stefnan tekin á Borgarfjörð Eystri og á leiðinni skoðum við rennsli í Dyrfjöllum.
Gistum og snæðum í góðu yfirlæti hjá Arngrími Viðari á Álfheimum á Borgarfirði.

Dagur 2:
Stefnan tekin í átt til Seyðisfjarðar og eitthvað gúmmelaði skíðað á leiðinni.......
Endum svo daginn á því að koma okkur útí náttúruperluna Skálanes.
Sauna, pottur og eitthvað gríðar gott að snæða.....

Dagur 3:
Eftir óbyggða og annesja fíling í Skálanesi brunum við til baka í gegnum Egilsstaði
og tökum stefnuna niður á firði. Skíðum væntanlega eitthvað á Fagradal eða
í Reyðarfirði þennan daginn og endum í pottinum hjá Sævari á Mjóeyri við Eskifjörð.
Kvöldverður og gisting hjá honum.

Dagur 4:
Oddskarðs svæðið og Norðfjörður tekinn í nefið. Þarna eru svakalegar brekkur.
Höldum okkur á Mjóeyri því potturinn er svo góður þar.

Dagur 5:
Margt í boði hvort sem er á Eskifirði, Norðfirði, Reyðarfirði nú eða bara á Fáskrúðsfirði.....
Bombum til baka og hendum sunnlendingunum í flug á Egilsstöðum og brunum
svo sem leið liggur norður yfir öræfi og heim.


Innifalið:Mjoeyri,Mjóeyri,Bergmenn,Fjallaskíðaferð
- Leiðsögn einu faglærðu fjallaleiðsögumanna landsins
- Farartæki
- Öll gisting með kvöldmat
- Morgunmatur x 2 (ekki morgunmatur á Mjóeyri)
- Gríðarleg skemmtun
- Ljósmyndari með geitaskegg

Ekki innifalið:
- Áfengir drykkir
- Nesti og 2 x morgunmatur

Útbúnaðarlisti fyrir fjallaskíðaferð

- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Skíðasokkar
- Nærföt (ull eða gerfiefni) Oddsskarð,bergmenn,fjallaskíðaferðir,jökull bergmann
- Skíðabuxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Hanskar (2 pör,þykkir,þunnir)
- Húfa
- Bakpoki 30-40 lítra með skíða festingum
- Vatnsflaska, minnst 1 líter
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu
- Skíðagleraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Skíði (Fjallaskíði, Telemark eða split board)
- Skinn og skíðabroddar
- Skíðastafir
- Skíðaskór
- Skófla
- Snjóflóðastöng
- Snjóflóðaýlir
- Persónuleg drykkjarföng af sterkari gerðinni fyrir þá sem vilja
- Tannbursti og nauðsynlegt snyrtidót
- Myndavél

Bergmenn bjóða uppá allann fjallaskíða og snjóflóða útbúnað til leigu á góðu verði. Um er að ræða nýjustu Black Diamond skíði, Scarpa skó og Pieps snjóflóðaútbúnað. Hafðu samband og við græjum fyrir þig allt sem þarf.

Bendum einnig á Fjallakofann í Hafnarfirði fyrir þá sem vilja festa kaup á græjum, en þar er mesta úrval útbúnaðar og best þekking á þessu sviði hér á Fróni.


Mynd augnabliksins

iceland_heli_ski48.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf