Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Hraundrangi Hraundrangi í Öxnadal er án nokkurs vafa einn tignarlegasti og jafnframt þekktasti tindur landsins. Það var þó ekki fyrr en árið 1956 að hann

Bókun

Hraundrangi

Hraundrangi í Öxnadal er án nokkurs vafa einn tignarlegasti og jafnframt þekktasti tindur landsins. Það var þó ekki fyrr en árið 1956 að hann var klifinn í fyrsta sinn og engin fannst gullkistan á toppnum eins og þjóðsagan sagði til um. Klifrið á Hraundranga er flestum fært svo lengi sem þeir eru vel a sig komnir líkamlega og þjást ekki af mikilli lofthræðslu því þegar upp er komið er varla pláss fyrir meira en einn mann í einu á toppnum. Meira

Lengd ferðar: 1 dagur 
Dagsetningar: Allt árið um kring eftir pöntun
Verð: 55.000,- ISK fyrir 1 eða 35.000,- ISK á mann fyrir 2
 
Klifrið á Hraundranga er sannkallað ævintýri. Lagt er af stað frá bænum Staðarbaka í Hörgárdal og er um 2 tíma ganga upp brattar brekkur að rótum sjálfs drangsins. Þá tekur við um 100m klifur þar sem að leiðsögumaðurinn klífur fyrst upp með línuna og tryggir svo sína gesti. Drangurinn er klifinn í 2-3 áföngum og þegar toppnum er náð er braðgðað á pelanum góða sem þar er geymdur og teknar myndir áður en sigið er niður. Reikna má með að klifur á Hraundranga taki um 7 klst frá því að lagt er af stað frá Staðarbakka og komið aftur niður. Hraundrangi er klifinn á sumrin sem og veturna en þá er beitt sömu tólum og í ísklifri það er broddum og ísöxum. Árið 2007 kleif Jökull Bergmann ásamt félögum nýja og mun erfiðari leið upp norð vestur hrygg drangsins og kemur hún vel til greina fyrir þá sem vanir eru klifri og vilja takast á við krefjandi verkefni.

Kíkið endilega á þetta stutta myndband úr leiðangri á fjallið þann 30 jan 2010



Innifalið í verði:

- Leiðsögn faglærðs fjallaleiðsögumanns
- Leiga á klifurútbúnaði 

Útbúnaðarlisti fyrir sumarferð á Hraundranga

- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Buxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Húfa
- Gönguskór (Stífir gönguskór henta betur en mjúkir)
- Bakpoki 25-35 lítra
- Vatnsflaska, minnst 1 líter
- Nesti fyrir daginn
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Myndavél
- Höfuðljós (Eftir árstíma)

Sumt af þessum búnaði er hægt að fá leigt hjá Bergmönnum eða hjá Fjallakofanum í Hafnarfirði 5109505. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi búnaðarval þá ekki hika við að hafa samband.

Hraundrangi,klifur,leiðsögn,Bergmenn,
Hraundrangi,klifur,leiðsögn,Bergmenn,Hraundrangi,klifur,leiðsögn,Bergmenn,









Mynd augnabliksins

1225622861_resized.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf