Þú þarft ekki að fara alla leið í Alpana til að upplifa heimsklassa fjallskíðatúr því á Tröllaskaganum bíður þín verðugt verkefni í anda hinna frægu ''Haute Route'' eða ''Há Leiða'' Alpana. Í þessari einstöku ferð er Tröllaskaginn þveraður frá norðri til suðurs frá Siglufirði til Akureyrar. Þar sem að engin eru fjallahótelin á leiðinni að þá er gist í faðmi fjallanna á Klængshóli í Skíðadal en þráðurinn tekin upp á hverjum degi með aðstoð trússbíls. Þessi ferð er fyrir þá sem hlotið hafa sína eldskírn á fjallaskíðum og eru að leita sér meira krefjandi verkefna. Komdu og vertu meðal þeirra fyrstu til að þvera Tröllaskagann.
Hvað gerir þessa ferð svona magnaða?
- Vertu meðal fyrstu manna/kvenna til að skíða endilangan Tröllaskagann
- Margar útfærslur leiðarinnar hafa aldrei áður verið skíðaðar
- Alltaf nægur snjór fyrir þá sem vita hvar á að leita
- Þjónusta og öryggi sem felst í því að ferðast með einu faglærðu fjallaleiðsögumönnum landsins
- Persónuleg þjónusta sem miðar að því að gera þig að betri fjallaskíðamanni eða konu
- Alla vikuna ert þú að læra og bæta þig undir handleiðslu fagmanna
- Dvölin á Klængshóli, þér verður spillt með blöndu af Haute cuisine og íslensku sveita eldhúsi
- Myndasýningar frá fjallaævintýrum hverskonar á kvöldin yfir góðu glasi fyrir þá sem vilja
Innifalið í verði
- Gisting í uppábúnum rúmum í tveggja manna herbergjum með sameiginlegum baðherbergjum
- Allur matur frá morgunverði á fyrsta degi til hádegisverðar á síðasta degi
- Leiðsögn einu faglærðu fjallaleiðsögumanna landsins
- Bílferðir til og frá upphafs og endapunktum hvers dag
- Leiga á mannbroddum og jöklabúnaði

Ekki innifalið í verði
- Leiga á útbúnaði öðrum en ofangreindum
- Áfengir drykkir
- Persónulegar slysatryggingar
Ferðaáætlun fyrir 7 daga ferð
Dagur 1
Koma á Klængshól í Skíðadal seinnipart dags til skrafs og ráðagerða með leiðsögumanninum. Eftir ljúffengan kvöldverð gefst kostur á að fara yfir útbúnaðinn og gera allt klárt fyrir fyrsta skíðadaginn eða skreppa í smá kvöldgöngu í stórkostlegri náttúru Tröllaskaganns.
Dagur 2
Eftir góða viðdvöl við morgunverðar hlaðborðið er haldið til fjalla. Við höldum til Siglufjarðar þar sem ferð okkar hefst. Á
þessum fyrsta skíðadegi er tekin ýtarleg snjóflóða æfing þar sem að
allir fá að prófa snjóflóðaýlana og farið er yfir grunnatriði í mati á
snjóflóðahættu og björgun úr snjóflóðum. Ferðinni er heitið yfir í Héðinsfjörð og þaðan yfir fjöllin til Ólafsfjarðar.
Dagur 3
Við tökum upp þráðinn á Ólafsfirði og skíðum yfir til Dalvíkur eða Svarfaðardals eftir því hvaða leið verður fyrir valinu að þessu sinni. Þennan dag njótum við ótrúlegs útsýnis yfir Eyjafjörðinn á tignarleg fjöll Huldulands sem rísa brött yfir Látraströnd. Í lok dags hvílum við lúna kroppa í heitu pottunum á Dalvík áður en við höldum heim á Klængshól.
Dagur 4
Úr Svarfaðardal skíðum við yfir mikilfenglega tinda og skörð og endum heima á hlaðinu á Klængshóli. Þessi dagur er einn sá mest krefjandi í ferðinni sökum bratta og alvarleika fjallanna sem við þurfum að þvera. En að sama skapi eru verðlaunin einhverjar bestu brekkur sem Tröllaskaginn hefur uppá að bjóða.
Við leggjum í hann beint frá Klængshóli og tökum stefnuna á
Dýjafjallshnúk, hæsta fjall á utanverðum Tröllaskaga. Í dag náum við
hápunkti ferðarinnar í tæðum 1450 metrum yfir sjó og lengstu brekkunum
niður í Hörgárdal þar sem bíllinn bíður.
Dagur 6
Einhverntíman verða öll ævintýri að enda, en þó ekki fyrr en síðustu fallmetrarnir hafa verið skíðaðir og síðasti tindur vikunnar sigraður. Við tökum upp þráðinn í Hörgárdal og klifrum upp víðáttur Vindheimajökuls. Þegar toppnum er náð blasir Akureyri við okkur og við rennum okkur með bros á vör niður í Glerárdal. Við höldum heim á leið með þreytta leggi og bros á vor með plön fyrir næsta fjallaskíðaævintýri í kollinum.
Dagur 7
Auka dagur ef veður reynast válynd. Ef veðrið síðan leikur við okkur að þá er ekki annað að gera enn að eyða þessum degi í það að skíða einhvern af þeim fjölmörgu mögnuðu tindum sem Tröllaskaginn hefur uppá að bjóða.
Útbúnaðarlisti fyrir fjallaskíðaferð á Tröllaskaga
- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Skíðasokkar
- Nærföt (ull eða gerfiefni)
- Skíðabuxur (Soft shell, flís)
- Flís eða ullar peysa
- Hanskar (2 pör,þykkir,þunnir)
- Húfa
- Bakpoki 30-40 lítra
- Vatnsflaska, minnst 1 líter
- Lítil sjúkrataska (Hælsæris plástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Sólgeraugu
- Skíðagleraugu
- Sólaráburð á andlit og varir
- Skíði (Fjallaskíði, Telemark eða split board)
- Skinn og skíðabroddar
- Skíðastafir
- Skíðaskór
- Skófla
- Snjóflóðastöng
- Snjóflóðaýlir
- Persónuleg drykkjarföng af sterkari gerðinni fyrir þá sem vilja
- Tannbursti og nauðsynlegt snyrtidót
- Myndavél
Bergmenn bjóða
uppá allann fjallaskíða og snjóflóða útbúnað til leigu á góðu verði. Um
er að ræða nýjustu Black Diamond skíði, Scarpa skó og Pieps
snjóflóðaútbúnað. Hafðu samband og við græjum fyrir þig allt sem þarf.
Bendum einnig á Fjallakofann í Hafnarfirði fyrir þá sem vilja festa kaup á græjum, en þar er mesta
úrval útbúnaðar og best þekking á þessu sviði hér á Fróni.