Það er óhætt að segja að vinsældir fjallaskíðamennsku fari ört vaxandi hér á Fróni og er þar ekki að undra því hér eru allar aðstæður hinar fullkomnustu til iðkunnar þessarar frábæru íþróttar. Fleiri og fleiri eru að átta sig á því að hér er hægt að sameina bæði fjallgöngur og skíðaferðir og sjá landið í algerlega nýju ljósi. Bergmenn Fjallaleiðsögumenn bjóða uppá fjölda fjallaskíðaferða aðalega á Tröllaskaganum sem verður að teljast Mecca greinarinnar með sína óteljandi tinda og snjóþyngsli. En það er að mörgu að huga þegar það kemur að fjallaskíðaferðum og þar eru öryggismál efst á baugi því margar hættur leynast í fjalllendi að vetrar og vorlagi. Þess vegna er afar mikilvægt að afla sér þekkingar á t.d mati á snjóflóðahættu, leiðarvali og almennri fjallamensku áður en lagt er af stað á eigin vegum. Bergmenn bjóða uppá námskeið í fjallaskíðamennsku fyrir bæði byrjendur og lengra komna.
| |
Ferðir |
| Engar ferðir fundust |