Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Bergmenn Mountain Guides Iceland's only certified mountain guides

Bókun

Fjallaskíðaferðir eru á nokkurs vafa sérgrein Bergmanna enda hefur Jökull Bergmann staðið að markvissri kynningu og markaðssetningu á þessari frábæru íþrótt hér á landi um árabil. Ekkert jafnast á við það að sameina góða fjallgöngu og frábært rennsli og eru Íslendingar nú í óða önn að gera sér grein fyrir því að hér á landi eru aðstæður til fjallaskíðamensku á heimsmælikvarða. Tröllaskaginn er miðpunktur þessarar frábæru tegundar ferðamennsku með öllum sínum fjöllum og miklu snjóþyngslum. Tímabilið er frá mars og fram í júní þegar dagar eru orðnir langir, veður betri og snjórinn fullkominn til skíðunnar.
  Ferðir
Tröllaskagi - Fjallaskíðun á heimsmælikvarða 7 daga ferð
Það er engin tilviljun að á Tröllaskaga hafa verið teknar upp 4 skíðakvikmyndir og fjöldi greina birst um svæðið víðsvegar um heiminn. Þetta er einfaldlega vegna þess að Tröllaskaginn er fjallaskíðasvæði á heimsmælikvarða. Bergmenn bjóða uppá mislangar ferðir á þessu svæði sem þó allar eiga það sameiginlegt að vera gerðar út frá Klængshóli í Skíðadal þar sem þú munt njóta einstakrar gestrisni á milli þess sem þú skíðar mögnuðustu brekkur landsins. Meira
Tröllaskagi 4 daga fjallaskíðaferð
Þessi fjögurra skíðadaga ferð er tilvalin fyrir þá sem að eru að stíga sín fyrstu skref í fjallaskíða iðkun eða þá sem eru tímabundnari. Ferðin gefur þér fullkomið sýnishorn af þeim undrum sem Tröllaskaginn hefur uppá að bjóða þegar það kemur að fjallskíðamennsku en er nógu löng til þess að þér líður eins og þú hafir sloppið langt frá amstri hins daglega lífs og kemur endurnærður heim og klár í næsta fjallaskíðaslag. Meira
Dags og helgarferðir
Bergmenn bjóða þér uppá úrval dags og helgar fjallaskíðaferða fyrir hópa og einstaklinga. Þessar ferðir eru sérsniðnar að væntingum og reynslu hvers hóps með það eitt í huga að upplifunin sé ógleymanleg. Nokkur frábær fjöll sem vert er að skoða eru t.d Hvannadalshnúkur, Snæfellsjökull, Hekla, Botnsúlur, Skarðsheiði og svo mætti lengi telja Hvað er betra eftir langa og stranga uppgöngu en að renna sér áreynslu laust með bros á vör til baka. Þessar ferðir eru einnig stórsniðugar fyrir þá sem vilja læra á fjallaskíði áður en haldið er af stað í stærri túra.
''Haute Route'' Tröllanna - Þverun Tröllaskaga 6 daga ferð
Þú þarft ekki að fara alla leið í Alpana til að upplifa heimsklassa fjallskíðatúr því á Tröllaskaganum bíður þín verðugt verkefni í anda hinna frægu ''Haute Route'' eða ''Há Leiða'' Alpana. Í þessari einstöku ferð er Tröllaskaginn þveraður frá norðri til suðurs frá Siglufirði til Akureyrar. Þar sem að engin eru fjallahótelin á leiðinni að þá er gist í faðmi fjallanna á Klængshóli í Skíðadal en þráðurinn tekin upp á hverjum degi með aðstoð trússbíls. Þessi ferð er fyrir þá sem hlotið hafa sína eldskírn á fjallaskíðum og eru að leita sér meira krefjandi verkefna. Komdu og vertu meðal þeirra fyrstu til að þvera Tröllaskagann.
Hvannadalshnúkur - Lengsta brekka landsins
Það er ekki spurning að það er ekkert vit í öðru en að fara á Hvannadalshnúk á fjallaskíðum, enda er þetta nú lengsta skíðabrekka á Íslandi. Við skíðum að öllum líkindum Virkisjökuls eða Svínafellsjökuls leið, báðar alveg stórkostlegar skíðabrekkur umkringdar einhverju hrikalegasta landslagi sem fyrirfinnst á okkar stórbrotna landi. Falljöklar steypast fram af brún Öræfajökuls og tignarlegir tindar eins og Dyrhamar, Kirkja og Hrútsfjallstindar gnæfa uppúr Jökulþekjunni. Eftir stórkostlegan skíðadag njótum við þess að slaka á í heita pottinum á Svínafelli og í þægilegri gistingu og "apre ski" á Hótel Skaftafelli. Meira 
Jökulfirðir - Seglskútu skíða ævintýri
Það eru ekki mörg lýsingarorð sá ná yfir þá einstöku upplifun að sigla um á skútu og skíða frábærar brekkur á svæði þar sem þú ert einn í heiminum. Slaka svo á um borð yfir dýrindis kræsingum og góðu glasi og endurtaka það svo fimm daga í röð. Jökulfirðir og Hornstrandir eru þjóðþekkt svæði fyrir einstaka náttúrfegurð en einnig fyrir einstaklega mikil snjóþyngsli og brött fjöll. Það er nákvæmlega það sem við erum á höttunum eftir og könnum, útfrá fljótandi fjallahótelinu Auroru. Meira 
Tungnahryggsjökull - Einstök upplifun
Jökulhásléttan milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar er engu lík í Íslenskri náttúru. Þetta víðáttumikla hálendi sem liggur um og yfir 1000m yfir sjávarmáli minnir helst á víðáttur Grænlands eða Suðurskautslandsins í smækkaðri mynd. Brattir tindar rísa tígulega uppúr jökulþekjunni sem breiðir úr sér hvert sem auga er litið. Markmið ferðarinnar er að rannsaka áður óskíðaðar lendur hásléttunnar útfrá fjallaskálanum á Tungnahrygg í 1200m. Þetta er sannkölluð fjallaferð. More

Mynd augnabliksins

1225622875_resized.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf