Flýtilyklar
Bókun
Möguleikar til fjallgangna og fjallaklifurs eru óþrjótandi hér heima á Fróni og hver landshluti á sín einkennisfjöll sem allir Íslenskir fjallamenn vilja glíma við. Mörg þessara fjalla eru auðveld uppgöngu en fjöldinn allur er þó illkleifur nema í för með faglærðum fjallaleiðsögumanni. Hér að neðan eru nokkrar góðar og vinsælar ferðir sem reglubundið eru farnar en ef þú hefur eitthvað annað fjall í huga að þá hefurðu samband og við gerum hugmyndina að veruleika.
| Ferðir | |
|---|---|
![]() |
Hrútsfjallstindar Hrútsfjallstindar í Öræfasveit eru mikið augnayndi þar sem þeir rísa tæpa 1700 metra uppyfir Svínafellsjökli vestan Öræfajökuls og Hvannadalshnúks. Það er rökrétt framhald af Hnúksferð eða góður undirbúningur að klífa Hrútsfjallstinda. Nokkrar leiðir eru í boði á Hrútsfjallstinda en í þessari ferð er ein af þeim auðfarnari í boði en ekki sjálfur suðurveggurinn með sínum 1700 metrum af hörku klifri. Tæknilegir erfiðleikar eru svipaðir þeim sem fyrirfinnast á Hvannadalshnúk og því fært flestum í góðu líkamlegu formi á Hrútsfjallstinda. Meira |
![]() |
Hvannadalshnúkur Það verður að teljast skylduverkefni hvers Íslensks fjallamanns og konu að ganga á Hvanndalshnúk því hvert land á sér nú bara einn hæsta tind. Gangan á Hvannadalshnúk er löng og reynir á þrek og úthald þótt hún teljist ekki til tæknilegs klifurs. Útsýni er óvíða fegurra þar sem við hafinu taka svartir sandar sem síðan mæta fjöllum og jöklum Öræfasveitar. Einstök upplifun og mögnuð jöklaferð. Meira |
![]() |
Hraundrangi Hraundrangi í Öxnadal er án nokkurs vafa einn tignarlegasti og jafnframt þekktasti tindur landsins. Það var þó ekki fyrr en árið 1956 að hann var klifinn í fyrsta sinn og engin fannst gullkistan á toppnum eins og þjóðsagan sagði til um. Klifrið á Hraundranga er flestum fært svo lengi sem þeir eru vel a sig komnir líkamlega og þjást ekki af mikilli lofthræðslu því þegar upp er komið er varla pláss fyrir meira en einn mann í einu á toppnum. Meira |
![]() |
Everest vika á Tröllaskaga 8840m Þessi stórskemmtilega en krefjandi ferð er ætluð þeim sem eru í góðu formi og í leit að krefjandi verkefni. Á 6 dögum er hæð Mt Everest 8840m klifin á tindum Tröllaskagans undir handleiðslu Jökuls Bergmanns. Þetta þýðir að í 6 daga samfleytt er tekin út hækkun uppá tæpa 1500m á dag sem reynir vel á andlegt og líkamleg úthald. Ferðin er gerð útfrá Klængshóli í Skíðadal þar sem við njótum margrómaðrar gestrisni og matargerðar Önnu Dóru húsfreyju og getum slakað vel á á milli tinda. Meira |
![]() |
Kerlingareldur Í fjallinu Kerlingu í Svarfaðardal leynist tæplega 200 metra klettastál sem hlotið hefur nafnið Kerlingareldur. Kerlingareldur er nánast óþekkt fyrirbæri hjá hinum almenna fjallamanni hér á Fróni en fyrir þá sem stunda tæknilegt fjalla og klettaklifur er þetta ein flottasta klifurleið sem í boði er á landinu. Nauðsynlegt er að hafa einhverja reynslu af klettaklifri og hafa farið með okkur í aðra túra eða námskeið áður en lagt er í þetta stórvirki. Meira |






