follow us on...
![]() |
![]() |
| Ferðir | |
|---|---|
![]() |
Dagsferðir Dagsferð í þyrluskíðun er ævintýri sem engu er líkt en jafnframt varasamt þar sem að þeir sem komnir eru á bragðið eiga oft erfitt með að hætta.....Dagsferðirnar okkar eru gerðar út frá Klængshóli í Skíðadal þar sem lengstu brekkur Tröllaskagans bíða eftir þér. Möguleikarnir eru endalausir á stórum opnum brekkum, bröttustu giljum og stærstu hvilftarjöklum landsins með skíðaða fallhæð uppá 1200 metra. Komdu og upplifðu fjalllendi og brekkur á heimsmælikvarða. |
![]() |
Private 4 daga ferð fyrir fjóra Árið 2010 markar tímamót í sögu skíðamennsku á Íslandi. Þetta verður þriðja árið sem boðið verður uppá reglulegar þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum og Íslandi yfir höfuð, eftir að mjög árangursrík forkönnun á möguleikum til þyrluskíða iðkunnar átti sér stað vorið 2008. Jökull Bergmann ásamt alþjóðlegum sérfræðingum í þyrluskíðun hefur útbúið 4 daga þyrluskíðaferðir sem farnar verða í maí 2010 með það að markmiði að kanna svæði sem aldrei hafa séð mann á skíðum áður, skíða áður óskíðaða tinda, nefna leiðir og bjóða þér uppá að taka þátt í stórkostlegu ævintýri á fjöllum. í þessari ferð eru aðeins fjórir skíðamenn ásamt sínum leiðsögumanni og þyrlan er fyrir hópinn eingöngu. |
![]() |
Semi Private 4 daga ferð fyrir átta manns Árið 2010 markar tímamót í sögu skíðamennsku á Íslandi. Þetta verður þriðja árið sem boðið verður uppá reglulegar þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum og Íslandi yfir höfuð, eftir að mjög árangursrík forkönnun á möguleikum til þyrluskíða iðkunnar átti sér stað vorið 2008. Jökull Bergmann ásamt alþjóðlegum sérfræðingum í þyrluskíðun hefur útbúið 4 daga þyrluskíðaferðir sem farnar verða í maí 2010 með það að markmiði að kanna svæði sem aldrei hafa séð mann á skíðum áður, skíða áður óskíðaða tinda, nefna leiðir og bjóða þér uppá að taka þátt í stórkostlegu ævintýri á fjöllum. í þessari ferð er skíðað í tveimur 4 manna hópum þar sem að hver hópur hefur sinn leiðsögumann og þyrlan þjónustar báða hópa. |