sunnudagur 03.janúar 2010

Ski and surf on the Troll Peninsula
Ég vona að þessi póstur hitti vel á ykkur eftir ánægjulega jólahátíð nær og fjær. Að vanda sendi ég ykkur með þessu litla skeyti, mínar allra bestu óskir um gæfuríkt komandi ár og þakka ykkur af öllu hjarta fyrir frábærar stundir á fjöllum á undanförnum árum. Megi þær bara verða fleiri og betri á nýja árinu. Annáll þessa árs gæti nú líklegast fyllt meira en eina síðu því það var í nógu að snúast en mig langar nú samt að vanda að fara aðeins yfir öll þau stórskemmtilegu ævintýri í grófum dráttum og vona að það verði ykkur hvatning til að drífa ykkur á fjöll eða þó alla vegana í smá göngutúr eða bara í fjallið að renna sér. Fyrir þá sem ekki nenna að lesa að þá fylgir þessari áramótakveðju smá video kveðja á youtube sem þú getur skoðað með því að smella hér......
Árið 2009 hófst með botnlausri púður skíðun í Kanada þar sem að ég
starfaði enn eitt árið sem heli ski leiðsögumaður fyrir félaga mína hjá Selkirk Tangiersí bænum Revelstoke BC. Frábær vertíð að vanda með tug þúsundum fallmetra
skíðuðum með frábæru fólki. Að þessu sinni fór ég einsamall í Víking í leit að erlendum gjaldeyri á
meðan fjölskyldan beið á Tröllaskaganum í ofvæni eftir að nýjasti meðlimurinn kæmi í heiminn. Stærsti atburður 2009 var svo
náttúrlega síðastliðið vor þegar Úlfur Berg Jökulsson kom í heiminn, stærðarinnar drengur sem dafnar vel og verður kominn
á skíði áður en ég veit af. Tímasetningin var kannski ekki sú best skipulagðasta af minni hálfu þar sem að aldrei hefur
verið meira að gera á Tröllaskaganum í fjallaskíða og þyrluskíðaferðum en þetta vorið, en allt fór þetta nú
eins og best verður á kosið undir stjórn húsfreyjunnar og hins raunverulega yfirmanns Bergmanna henni Sunnu Björk. En það var ekkert slakað á
þegar snjóa tók að leysa heldur allt sett af stað við stofnun á nýju fyrirtæki í útivistargeiranum. Það eru Glacier Guides sem staðsettir eru í Öræfasveit og sérhæfa sig
í göngum á skriðjöklunum þar í kring, Hvannadalshnúksferðum, ísklifri
og margskonar útivistar afþreyingu fyrir alla, útfrá Skaftafelli. Þetta stórskemmtilega verkefni sem er
samstarfBergmanna og snillinganna Einars Ísfeld og félaganna í Arctic Adventures fór gríðarvel af stað með mörg þúsund
ánægðum viðskiptavinum og 10-20 manns í vinnu í allt sumar. Glacier Guides munu að sjálfsögðu bjóða uppá
Hnúksferðir og fleira spennandi með hækkandi sól. En það var í mörg horn að lýta þetta sumarið og næst var stefnan tekin
í Alpana þar sem að hver tindurinn á fætur öðrum var klifinn. Þessi alpa vertíð heppnaðist mjög vel með góðu veðri
og aðstæðum og er stefnan tekin á að endurtaka leikinn sumarið 2010 því Íslendingar virðast ólmir í að reyna sig
viðhátinda Alpanna. Með haustinu kom svo kærkomin hvíld og
tími fyrir fjölskylduna á Tröllaskaganum ásamt undirbúningi fyrir veturinn sem nú herjar svo um munar með hné djúpu púðri og
frábærum ísklifur aðstæðum hér fyrir norðan. 2010 virðist ætla að heilsa með frábærum aðstæðum eins og
áður sagði og nóg verður um að vera með hækkandi sól. Fjallaskíða prógramm Bergmanna hefur aldrei verið jafn fjölbreytt og þetta vorið
þar sem að nýjar slóðir verða kannaðar ásamt því að þyrlan verður notuð óspart fyrir þá sem
leggja meiri áherslu á niðurferðina. Fyrri part vetrar verður varið í ísklifur ferðir hér á Fróni en í fyrsta sinn í 7 ár verð
ég staddur hér heima fyrstu mánuði ársins til að einbeita mér að öllum þeim spennandi verkefnum sem bíða. En nóg blaður
í bili því það eru ísfossar þarna úti sem bíða fyrstu uppferðar og púður sem þarf að þeyta til, ég
óska þér enn og aftur alls hins besta á nýja árinu og vonast til að sjá þig fjöllum, og eins og alltaf, ekki hika við
aðhafa samband ef það er eitthvað sem að ég get gert
fyrir þig.Fjalla og árámótakveðjur af Tröllaskaganum
Jökull Bergmann

