Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Febrúar fjallapóstur Heilir og sælir kæru vinir, ferðafélagar of samstarfsfólk Þessi febrúar fjallapóstur kemur í kjölfar þeirrar miklu gleði sem nú

Febrúar fjallapóstur

Heilir og sælir kæru vinir, ferðafélagar of samstarfsfólk

Þessi febrúar fjallapóstur kemur í kjölfar þeirrar miklu gleði sem nú ríkir á Tröllaskaganum þar sem púður snjór hylur allt og ísaðstæður eru með besta móti. Þótt ýmislegt hafi gengið á í veðrinu undanfarnar vikur, eru nú allar líkur á að veturinn ætli að verða með besta móti og að nægur snjór verði í fjöllunum í vor þegar fjalla og þyrlu skíðaferðir bresta á. Í þessum litla pósti finnið þið fréttir af fjöllum og næstu ævintýrum sem eru t.d Haute Route ferð í Ölpunum, áður en stærsta skíðavertíð í mínum minnum fer af stað á Tröllaskaganum, kynning á Alpaklifur prógrammi sumarsins ásamt upplýsingum um hvernig þið getið komist í ókeypis þyrluskíðaferð nú í vor..........!!!  Kíkið á þetta og ekki hika við að hafa samband ef það er eitthvað sem að ég get aðstoðað ykkur með.

Sjáumst hress á fjöllum

Góð ísklifurtörn undanfarnar vikur hefur skilað sér í fjölmörgum nýjum leiðum og þá sérílagi á ný-endur uppgötvuðu svæði í Ólafsfjarðarmúla. Þar klifu gallharðir Dalvíkingar m.a fossinn fræga, Míganda árið 1983 en síðan þá hefur lítið verið um ferðir í Múlann fyrr en í vetur að yfir 15 nýjar leiðir hafa verið klifnar. Þetta gæti reyndar haft eitthvað með það að gera að þetta er fyrsti veturinn í 7 ár sem ég er á svæðinu. Myndin er tekinn af hirðljósmyndara Bergmanna, Guðmundi Tómassyni í leiðinni Gale Force WI5 sem ég kleif í Janúar ásamt Kanadíska harðjaxlinum Chris Geisler. Múlinn er ótrúlega fallegt svæði þar sem klifið er beint uppyfir súrrandi briminu sem skellur í hamrana með tilheyrandi látum. Hraundrangi í Öxnadal hefur einnig verið vinsæll hjá okkar góðu viðskiptavinum en fyrir þá sem langar að sjá hvernig klifur á Hraundranga fer fram að þá getið þið kíkt á þetta litla og skemmtilega video frá því í vetur. En það fer að síga á seinni hluta ís og fjallaklifurs tímabilsins því brátt brestur á með fjallaskíðavertíð sem hefst hjá mér með ferð í Alpana þar sem hin gríðarlega skemmtilega Haute Route fjallaskíðaleið milli Chamonix í Frakklandi og Zermatt í Swiss verður skíðuð í hóp eldhressra Íslendinga.

Þegar heim úr Ölpunum er komið tekur við afar annasöm fjalla og þyrluskíða vertíð á Tröllaskaganum en nú þegar eru nánast allir dagar að verða uppbókaðir af helsjúkum skíða fíklum allstaðar að úr heiminum. Fyrir þá sem enn hafa ekki gert upp hug sinn er vert að minnast á nokkrar ferðir og dagsetningar þar sem enn eru nokkur laus pláss.Haute Route Tröllanna milli Siglufjarðar og Akureyrar 31 Mars - 5 Maí, 4 daga fjallaskíðaferð á Tröllaskaga 30 Apríl - 4 Maí og í eins dags þyrluskíðaferðir eru lausir dagar 9-12 og 17-18 maí. Einnig eru enn laus pláss í þyrlunni eftir 24 Maí. Fyrir hópa reynum við svo að sjálfsögðu að setja upp þá daga sem henta. Stórar fréttir og frábærar fyrir þá sem alltaf hafa ætlað sér að prófa töfra fjallskíðamennskunnar en ekki haft aðgengi að búnaði, er að í vor munu Bergmenn bjóða uppáBlack Diamond - Pieps Fjallskíða Test Center þar sem heilu hópunum gefst kostur á að koma með okkur í ferðir og leigja allan útbúnað gegn vægu gjaldi, og í kjölfarið fá umtalsverðan afslátt af nýjum græjum í Fjallakofanum, frábærar fréttir ef þig langar að prófa eða bara leigja flottustu græjurnar.

Þetta árið kynnum við nokkra nýja starfsmenn til leiks. Brimbretta kappinn Oliver Hilmarsson hér til vinstri hefur starfað á skrifstofunni síðan í haust og sér um bókanir og daglega yfirumsjón á milli þess sem hann slátrar stórum öldum og skíðar grimmt. Það er okkur einnig mikill heiður að fá Friðjón Þorleifsson (til hægri) heim frá Kanada en hann mun leiðseigja á Tröllaskaganum í tvo mánuði í vor. Friðjón stefnir ótrautt á að verða næsti Íslendingurinn til að landa UIAGM fjallaleiðsögumanna gráðunni en hann er búsettur í Kanada þar sem hann starfar m.a við Cat og Heli ski leiðsögn á milli þess sem hann klifrar stærstu ísklifurleiðir Klettafjallanna. Einnig er von á skíðaleiðsögumanninum, undirfatafyrirsætunni og allsherjar sjarmatröllinu Kirk Becker til leiks en hann mun þeytast um í þyrlunni á milli þess sem hann gleður augað. Að öllum öðrum ólöstuðum erum við hinsvegar einna ánægðastir með það, að hasar kokkurinn Sonja Eyglóardóttir mun sjá um að halda mannskapnum nærðum, en hún er líklega þekktust fyrir að galdra fram kræsingar á Halastjörnunni í Öxnadal.


Ef ske kynni að ykkur langaði í ókeypis þyrluskíðaferð að þá erum við orðnir all Fés væddir (Facebook) með áhanganda síður fyrir bæði Bergmenn og svo aðra fyrir Arctic Heli Skiing. Endilega smellið á báða hlekkina til að skrá ykkur sem áhangendur því að á Fésinu okkar eru alltaf sjóðheitar fréttir, tilboð o.þ.h Á Arctic Heli Skiing fésinu er svo að finna stórskemmtilegan leik en ef þið skráið ykkur og segið öllum heiminum frá að þá gefst ykkur kostur á að vinna heilan dag í þyrluskíðun nú í vor ykkur að kostnaðarlaus. Þið hin sem ekki takið þátt í þessari Fés vitleysu bið ég afsökunar á þessari grimmu markaðssetningu. En eftir alla þessa skíðamennsku er ekki seinna vænna en að fara að huga að sumrinu, sem verður tileinkað Alpaklifri, þar sem stefnt er á að leggja hvern tindinn á fætur öðrum með góðum hópum Íslendinga. Ferðir sem á dagskrá eru með lausum plássum eru m.a Mont Blanc 17 - 24 Júli, Matterhorn 25 - 31 Júlí og svo Eiger 2 - 6 Ágúst. Fyrir þá sem ekki komast á þessum dögum er svo auðvitað hægt að sérsníða ferðir, því leiðsögumen okkar verða í ölpunum í allt sumar. Ef þú ert að huga að Alpaklifri nú í sumar að þá er ráð að hafa samband sem fyrst því að allar skálabókanir og annað þarf að framkvæma með góðum fyrirvara í hinum sí vinsælu Ölpum.
Að lokum langar mig að ''bjóða'' ykkur að koma á fjallaskíða myndasýningu næstkomandi fimmtudagskvöld hjá Ferðafélagi Íslands í Mörkinni 6 en þar mun ég sýna myndir frá helstu fjallaskíðasvæðum landsins og kynna mismunandi búnað. Sýningin er fjáröflun til styrktar endurbyggingu á Bratta, skála Íslenska Alpa Klúbbsins í Botnsúlum.



Jæja þá læt ég nú þessum ''rusl pósti'' lokið en ég vona nú samt að þið afsakið ónæðið og að allar fínu myndirnar gleðji ykkur og réttlæti þennan lýtt dulbúna auglýsinga snepil. Þið hikið ekki við að hafa samband ef það er eitthvað sem ég get aðstoðað ykkur með, sama hversu stórt eða lítið það er og svo vonast ég náttúrlega eins og alltaf til að sjá ykkur eldhress á fjöllum sem fyrst.

Jökull




Mynd augnabliksins

huld15.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf