fimmtudagur 19.nóvember 2009

Matterhorn alpaferðir Bergmenn
Vorið var það besta síðan
2002 hvað varðar fjallaskíða aðstæður á Tröllaskaganum og við nýttum okkur það til hins ýtrasta og
skíðuðum vel fram í júní í frábæru færi og nægum snjó. Aldrei hafa komið fleiri fjallaskíðamenn og konur
á Tröllaskagann eða frá fleiri löndum. Margir góðir ljósmyndarar voru á ferðinni og þið getið kíkt á
afraksturinnhér í þessu frábæra myndasafni sem
án efa er orðið stærsta myndasafn landsins með fjallaskíðatengdum myndum. Spennandi hlutir eru einnig á dagskrá fyrir vorið en fyrir utan okkar
vinsæla Tröllaskaga prógramm, Hulduland ogJökulfirði ætlum við að bjóða uppá''Haute Route'' Tröllanna, fyrstu þverun Tröllaskaga norður - suður um Páskana.
Ferð sem án efa mun verða ''klassísk'' skemmtun þar sem ókannaðar brekkur og tindar eru í aðalhlutverkum auk þess sem þessi hópur
mun verða fyrsta fólkið til að afreka þessa þverun á fjallaskíðum. Í vor munum við svo einnig bjóða uppá fjallaskíðaleigu með bestu fáanlegum græjum, nú geta allir komið og prófað töfra Tröllaskagans.
Arctic Heli Skiing fór gríðarvel af stað í vor þar sem
þúsundir fallmetra voru skíðaðir á Tröllaskaganum og Huldulandi. Móttökurnar eru reyndar slíkar að við höfum opnað
nýja heimasíðu þar sem eingöngu er að finna upplýsingar um þyrluskíðaferðirwww.arcticheliskiing.comÞar mun innan skamms einnig vera hægt að bóka þyrluskíðaferðir t.d til
Grænlands, Kanada og Tyrklands í samvinnu við félaga okkar í þeim löndum. Smelltu hér til að skoða skemmtilegar myndir úr þyrluskíðaævintýrum vorsins. Við
munum halda þessu verkefni áfram næsta vor og nú þegar eru bókanir teknar að streyma inn og lausum plássum fækkar ört. Til að gefa
fleirum kost á að prófa þetta frábæra sport að þá munum við aftur bjóða uppá eins dags ferðir fyrir Íslendinga
sem vilja prófa, og erum meira að segja farnir að selja gjafabréf í þyrluskíðun í jólapakkann. Vorið 2010 er stefnan tekin á
að kanna áður óskíðuð svæði á Tröllaskaganum, svæði sem ekki nokkur sála hefur skíðað á
áður, en af ókönnuðum lendum er nóg hér í þessari fjalla og skíða paradís.
Alpavertíðin 2009 heppnaðist gríðar vel með fjölda ferða á
hæstu fjöll Evrópu. Íslendingar voru duglegir að nýta sér þá þjónustu að geta klifrað og gengið á fjöll
í Ölpunum undir íslenskri fjallaleiðsögn en eins og ég þreytist aldrei á að upplýsa fólk um, að þá er ég enn
sem komið er eini faglærði fjallaleiðsögumaður landsins UIAGM, og þar með eini
Íslendingurinn með starfsleyfi í Ölpunum. Ekki skemmir svo fyrir að þarna bjó maður jú árum saman og þekkir sig vel um.
Endilegasmelltu hér til að skoða stórfínar myndir
úr nokkrum alpaferða sumarsins. Sumarið 2010 verður einnig tileinkað Ölpunum en ég stefni á að pakka saman ''hele familien'' í bílinn,
sigla yfir pollinn, setja upp grunnbúðir í einhverjum sætum fjallabæ og eyða öllu sumrinu í stanslaust toppa príl, göngur og klifur.
Ég er nú þegar orðin töluvert bókaður fyrir sumarið en ekki hika við að hafa samband ef þú villt toppa næsta sumar
því mér til aðstoðar verður vinur minn fjallaleiðsögumaðurinn Gregory Faconsem talar fína Íslensku og er mörgum að góðu kunnur hér á Fróni. Smelltu hér til að skoða splunkunýtt og metnaðarfullt alpaprógram 2010, hver vill koma á Mont Blanc, Matterhorn eða Eiger?
