þriðjudagur 21.desember 2010

Klængshóll í Skíðadal
Heil og sæl kæru vinir, ferðafélagar og samstarfsfólk
Meðfylgjandi er lítil jólakveðja norðan af Tröllaskaganum, þar sem vetur konungur ræður ríkjum þessa dagana, með hríðarbyljum, skafrenningi og almennum hraglanda. Ólíkt öðrum bændum hér í sveit þá gleðst ég innilega yfir stórhríðinni og öskra hás upp í vindinn meira, meira, meira.Þetta árið var tekin ákvörðun um að í stað hefðbundinnar regnskóga eyðingar og ómældrar losunar gróðurhúsalofttegunda sem fylgir víst jólakorta skrifum, að þá yrði góðu málefni lagt lið og hvað er þá betra í huga fjallamannsins en að styrkja okkar góða Ferðafélag Svarfdæla sem nú hefur gengið í endurnýjun lífdaga og stefnir ótrautt á uppbyggingu ''alvöru'' fjallaskála á Tröllaskaganum ásamt almennri vakningu á sviði fjallamennsku. Þú sem sé afsakar að það komi ekkert kort inn um lúguna en getur yljað þér við tilhugsunina um hlýja skála í faðmi fjallanna á Tröllaskaganum.
Að lokum langar mig til að þakka ykkur öllum innilega fyrir allar frábæru ferðirnar á árinu sem er að líða, þar sem ótalfjallaskíða og þyrluskíðaferðir voru farnar, ásamt mögnuðum könnunar leiðöngrum á áður ókannaðar slóðir og svo náttúrulega allar fjallaskíða-, göngu og klifurferðirnar í Ölpunum síðasta vetur og sumar.
Nánari fregnir af þessu öllu saman koma í næsta pósti ásamt lýsingum á öllum hrikalega spennandi ferðum ársins 2011.
Fyrir hönd Bergmanna og Arctic Heli Skiing sendi ég þér kæra jólakveðju frá Klængshóli í Skíðadal
Jökull Bergmann


