Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Ný ísklifur leið í Ólafsfjarðarmúla Smelltum okkur í Múlann í gær og klifum áður ófarna leið. Aðstæður voru með besta móti miðað við hlýindi undanfarinna

Ný ísklifur leið í Ólafsfjarðarmúla

Smelltum okkur í Múlann í gær og klifum áður ófarna leið. Aðstæður voru með besta móti miðað við hlýindi undanfarinna vikna. Með í för var Akureyringurinn knái hann Magnús Smári sem sýndi góða takta. Eitthvað áttum við í erfiðleikum með að nefna ósköpin, en það er til siðs að þeir sem klifra fyrstir einhverja leið, nefna hana og gefa erfiðleika gráðu. Ef þú lumar á góðu heiti þá endilega sendu okkur línu því ''vegleg'' verðlaun eru í boði fyrir gott nafn.

ísklifur,bergmenn,klifur,jökull,bergmann

Leiðin er um 70m há og gráðast líklega WI4+. Þessi mynd er reyndar tekinn fyrr í Janúar þegar aðstæður voru öllu betri og feitari eins og við segjum í bransanum, en í gær var leiðin vinstra megin á myndinni ekki í aðstæðum.



Mynd augnabliksins

huld7.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf