sunnudagur 09.janúar 2011

Frá Fjöru til fjalla
Kæru vinir, ferðafélagar, starfsmenn og allt gott fjallafólk
Með þessum litla nýárspósti langar mig til að þakka ykkur kærlega fyrir stórmagnað 2010 og óska ykkur gríðarlegrar gæfu og alls hins besta á nýju ári. Eins og hefð er orðin fyrir að þá læt ég hér fljóta með smá annál frá árinu sem var að líða, en eins og ávallt þá verður hér aðeins stiklað á stóru, því fjöldi frábærra ferða og minninga frá árinu 2010 er þvílíkur að ''inboxið'' ykkar fengi væntanlega meltingar truflanir ef öll romsan kæmi í einum pósti ;-) Svo flýtur að sjálfsögðu með, smá yfirlit yfir öll þau ævintýri sem framundan eru, en þar er sömu sögu að segja, einfaldlega ''of'' mikið af fáránlega spennandi ferðum, sama hvort það er á skíðum, tveimur, eða fjórum misfljótum.
Árið 2010 byrjaði með miklu offorsi í ísklifrinu, þar sem félagi okkar, ofur klifrarinn Chris Geisler kom
í heimsókn og kleif fjölda nýrra leiða og lét ljós sitt skína í Ólafsfjarðarmúla. Eftir góða
ístíð í byrjun árs tók svo við okkar uppáhalds iðja, þ.e fjallaskíðin og var þar af nægu að taka því veturinn var góður með nægum snjó og miklu
púðri fyrri partinn. En það var náttúrlega ferðahugur í fólki og stefnan var tekin á Alpana í mars þar sem eld hress hópur íslendinga barðist við erfið skilyrði í gegnum hina stórkostlegu
Berner Oberland fjallaskíða ''traversu'' Einnig fóru leiðsögumenn Bergmanna hina frægu ''Haute Route'' leið
ásamt fjölda annara ferða í Ölpunum síðastliðin vetur. En alparnir voru nú bara byrjunin á stærstu skíðavertíð
Bergmanna til þessa, því aldrei hefur verið meiri aðsókn í fjallaskíða og þyrluskíðaferðir eins og árið 2010.
Vertíðin á Tröllaskaganum fór þó ekki varhluta af eldgosinu í Eyjafjallajökli en þótt ekki hafi fallið svo mikið sem
öskukorn á Tröllaskaganum þá urðu þó töluverðar búsifjar sökum samgöngu erfiðleika þar sem nokkrir hópar
festust á Fróni en aðrir í útlöndum.
Það besta við
þetta eldgos var þó tímabilið sem flogið var beint á Akureyri en til gamans má geta að stór hópur Skota flaug beint
Glasgow-Akureyri-Glasgow en hefðu annars þurft að fara mun lengri leið til að komast á skíðin. Einar stærstu fréttir ársins hjá
okkur, urðu til á sama tíma og Eyjafjallajökull lét sem ófriðlegast, en þá fengum við í heimsókn atvinnu skíða og
kvikmyndatökumenn sem voru hjá okkur í 10 daga við framleiðslu á kynningar myndbandi fyrir Arctic Heli Skiing. Ef þið hafið ekki nú þegar séð útkomuna, þá endilega smelllið hér og njótið, en við erum gríðarlega
ánægðir með þessa frábæru mynd, sem sýnir Tröllaskagann og okkar frábæra ævintýri í hárréttu
ljósi. Vorið 2010 lögðum við mjög mikla áherslu á það að ná góðu og lýsandi myndefni af þyrlu og
fjallaskíðaferðunum enda Bergmenn og Arctic Heli Skiing orðin vel þekkt fyrir flottasta fjallamyndefni sem til er á landinu, enda staðreyndin sú að
góð mynd segir meira en þúsund orð. Þannig að ef þið viljið sjá fleiri miljón rosaleg ''orð'' þá smellið
á þennann hlekk á flottustu myndir 2010
En það voru ekki bara okkar
klassísku fjallaskíðaferðir á Tröllaskagaog í
Jökulfjörðum sem farnar voru þetta árið og að vanda fóru Bergmenn sinn árlega ''óvissu leiðangur'' ásamt hörðum hópi
Akureyringa. Stefnan var sett á áður óskíðaðar lendur Huldulands, en það köllum við skagann milli Eyjafjarðar of Skjálfanda.
Vopnaðir landkortum, myndavélum og landkönnunar skapinu, héldum við á tvímastra eikar skonnortu í einn besta fjallaskíðatúr
síðari tíma, sem nú er kominn í sölu hjá okkur og heitir að sjálfsögðu frá Fjöru til Fjalla, kíkið á myndirnar. Það var svo ekki fyrr en um miðjan júní að
skíðin voru sett í geymslu og þá var haldið beina sjóleið í Alpana, en þetta árið lagðist öll fjölskyldan í
vinnuútlegð til Sviss, þar sem dvalið var í góðu yfirlæti og allir helstu tindar Alpanna klifnir hægri vinstri ásamt fábærum
hópum tind hungraðra Íslendinga. Haustið fór svo að mestu í áframhaldandi uppbyggingu inviða okkar hér á Tröllaskaganum en
árið 2010 var viðburðaríkt í þeim efnum og ber þar helst að nefna uppsetningu VHF fjarskiptakerfis, opnun fjallaskíðaleigu, miklar endurbætur á Klængshóli og svo
byggingu baðhússins ógurlega sem hýsir sauna, sturtur , potta og nuddherbergi svo eitthvað sé nefnt.
En nú er komið nýtt og hrikalega spennandi ár þar sem ekkert verður gefið eftir í leitinni eilífu að besta púðrinu, brattasta ísnum eða flottasta klettinum og munu Bergmenn að sjálfsögðu fara fremstir í flokki í þeim leiðangri. Veturinn verður uppfullur af sínum föstu liðum eins og fjallaskíða og þyrluskíðaferðum á Tröllaskaganum og í Ölpunum, og fer hver að verða síðastur að bóka dagsetningar, því þessir furðulega seinu Páskar 2011 hafa aldeilis haft góð áhrif á ferðahug landsmanna. Skútuskíðaferðir í Jökulfirði og Hulduland verða einnig fyrirferðarmiklar og þeir sem hafa hug á því að eiga við Hnúkinn eða önnur fjöll í Öræfum ættu ekki að hika við að hafa samband því heill her leiðsögumanna verður til taks í Skaftafelli í allt vor og sumar á vegum Jöklamanna. Að sjálfsögðu verður svo hörku Alpa vertíð í boði sumarið 2011 og þar er einnig að verða þétt bókað og þeir sem hug hafa á að glíma við Mont Blanc, Matterhorn, Eiger eða einhvern hinna fjölmörgu alpatinda ættu að hafa samband hið fyrsta.
Ef þetta var svo ekki nægilegt framboð ferða að þá er gaman frá því að segja að á þessu ári byrjum við einnig með fjallaskíðaferðir til Japans, Tyrklands, Kanada, og Krítar af öllum stöðum.....ásamt leiðöngrum á hæstu tinda heims, þannig að fylgist spennt með. Besta leiðin til að vera með puttann á púlsinuum er að fylgjast með okkur á ''Fésum'' Bergmanna og Arctic Heli Skiing nú eða bara að bjalla í okkur eða senda línu og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma þér á fjöll.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem komu í ferðir með okkur á árinu sem er að líða, hjartanlega fyrir frábæra daga á fjöllum og fyrir það að gera okkur kleyft að starfa við það sem að við höfum ástríðu fyrir, megi þessir dagar bara verða fleiri á þessu nýja ári.
Fjallakveðja af Tröllaskaganum


