Árið 2010 markar tímamót í sögu skíðamennsku á Íslandi. Þetta verður annað árið í röð sem
boðið verður uppá reglulegar þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum og Íslandi yfir höfuð, eftir að mjög
árangursrík forkönnun á möguleikum til þyrluskíða iðkunnar átti sér stað vorið 2008. Jökull Bergmann ásamt
alþjóðlegum sérfræðingum í þyrluskíðun hefur útbúið 4 daga þyrluskíðaferðir sem farnar verða
í maí og júní 2010 með það að markmiði að kanna svæði sem aldrei hafa séð mann á skíðum áður,
skíða áður óskíðaða tinda, nefna leiðir og bjóða þér uppá að taka þátt í stórkostlegu
ævintýri á fjöllum. Að auki munum við bjóða uppá dagsferðir með það að markmiði að gefa fleirum kost á að
prófa þetta ótrúlega skemmtilega sport.
Við skíðum frá Klængshóli í
Skíðadal þar sem að allar ferðir byrja og enda og skíðasvæði okkar nær um allan Tröllaskagann sem og Hulduland sem er skaginn
austan Eyjafjarðar. Frá Klængshóli er aðeins örstutt flug á næstu tinda, t.d Hestinn sem gefur okkur 1200 skíðaða fallmetra beint heim
á hlað á Kængshóli. Hvort sem um 4 daga ferð eða dagsferð er að ræða skíðum við í einum til þremur 4 manna
hópum þar sem hver hópur hefur sinn faglærða fjallaleiðsögumann sér til fulltingis.
Dagsferðir 2010
Innifalið í verði
|
|
| Ekki innifalið í verði: Ferðir, þátttakendur mæta á eigin bílum og nota - Slysatryggingar - Auka skíða ferðir - Skíða útbúnaður | |
Dagsferð
Mæting á Klængshóli í Skíðadal kl 08:00 að morgni dags í veglegan morgunverð. Í byrjun dags er farið yfir alla helstu
öryggis þætti þyrluskíðamennsku, flugmaðurinn kynnir fyrir okkur farskjótann og útskýrir vel þá fjölmörgu
öryggisþætti sem fólk þarf að vera meðvitað um í umgengni við þyrlur. Þá tekur leiðsögumaðurinn við og fer
yfir það hvernig þetta fer nú allt saman fram ásamt því sem við tökum æfingu á leit í snjóflóðum, lærum
á snjóflóðaýlana og þau öryggistæki sem með eru í för. Við skíðum í fjöllunum í Skíðadal
og á innanverðum Tröllaskaganum og snæðum hádegisverð á fjalli. Eftir 3-4 bunur niður nokkrar af bestu skíðabrekkum landsins höldum
við alsæl heim á leið. Fyrir þá sem ekki hafa fengið nóg eftir 4 ferðir er möguleiki á að kaupa aukaferðir.
4 daga ferðir 2010
Private 4 skíðamenn
|
Semi Private 8 eða 12 skíðamenn
|
| Ekki innifalið í verði: Ferðir, þátttakendur mæta á eigin bílum og nota - Slysatryggingar - Áfengir drykkir - Auka flugtími - Skíða útbúnaður | |
Ferðaáætlun dag frá degi
Dagur 1
Koma á Kængshól seinni part dags um kl 1800 sem við hittum leiðsögumennina og kynnum okkur fyrirkomulag ferðarinnar. Eftir ljúfengan
kvöldverð gefst kostur á að slaka á og undirbúa sig fyrir fyrsta skíðadaginn eða skreppa í rólegan göngutúr í
stórkostlegri náttúru Skíðadalsins. Fyrir þá sem eru í tímaþröng er einnig hægt að mæta að morgni dags 2
með t.d flugi frá Reykjavík.
Dagur 2-4
Í byrjun fyrsta dags er farið yfir alla helstu öryggis þætti þyrluskíðamennsku, flugmaðurinn kynnir fyrir okkur farskjótann og
útskýrir vel þá fjölmörgu öryggisþætti sem fólk þarf að vera meðvitað um í umgengni við þyrlur.
Þá tekur leiðsögumaðurinn við og fer yfir það hvernig þetta fer nú allt saman fram ásamt því sem við tökum
æfingu á leit í snjóflóðum, lærum á snjóflóðaýlana og þau öryggistæki sem með eru í för.
Þegar þessu er lokið tekur við leit okkar að óskíðuðum brekkum, fyrstu niðurferðum, landkönnun og við tökum þátt
í að skrifa nýjan kafla í sögu skíðamennsku á Íslandi. Í lok dags skellum við okkur í pottana á Dalvík og
gæðum okkur á ljúfengum kræsingum hjá húsfreyjunni á Klængshóli. Á venjulegum degi snæðum við morgunmat um kl 0800
og erum komin á skíðin uppúr kl 1000 og skíðum fram á seinnipart dags.
Dagur 5
Við byrjum á að pakka saman farangrinum okkar áður en haldið er af stað. Þennan síðasta skíðadag rennum við okkur fram að
hádegi, snæðum kjarngóðan hádegisverð á fjalli og fljúgum svo heim á leið. Við kveðjum nýja vini í
Skíðadalnum og þökkum fyrir ævintýralega upplifun.






