Bergmenn fjallaleiðsögumenn | Á Íslandi leggjum við aðaláherslu á ísklifur, fjallaskíða og þyrlu skíðaferðir auk fjallaklifurs

Það er óhætt að segja að okkar farsældar Frón beri nafn með rentu þegar það kemur að ís. Hér á landi eru allar aðstæður með því besta sem gerist í

Ísklifur

Það er óhætt að segja að okkar farsældar Frón beri nafn með rentu þegar það kemur að ís. Hér á landi eru allar aðstæður með því besta sem gerist í heiminum til ísklifurs og hingað hafa flestir þekktustu klifrar heims komið til að máta sig við Íslenska ísfossa. Tímabilið til ísklifurs er breytilegt en oft er hægt að byrja í október og klifra alveg fram í maí í góðu ári. Þess fyrir utan er hægt að æfa öll grunnatriði og tækni í skriðjöklum allan ársins hring.

Eins og áður sagði að þá erum við rík af rennandi vatni, köldu veðurfari og fjöllum sem er allt sem til þarf til að skapa kjöraðstæður til ísklifurs. Hægt er að stunda ísklifur um allt land og sem dæmi má nefna að í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík má finna um 100 ísklifurleiðir. Hvort sem þú villt prófa í fyrsta sinn eða skella þér í ferðalag um landið í leit að óklifruðum leiðum að þá eru Bergmenn til þjónustu reiðubúnir.

Bergmenn sérhæfa sig í ísklifur leiðsögn og eru einu faglærðu leiðsögumenn landsins á því sviði. Ísklifur ferðir falla í eðli sínu undir einkaleiðsögn sökum þess að aðeins 1-2 gestir eru í för með hverjum leiðsögumanni og þörf er á miklum sveigjanleika í áætlunum sökum veðurs og aðstæðna.


Verð á einkaleiðsögn í ísklifri

Ísland
Fjöldi 1:1 55.000.- ISK á mann á dag
Fjöldi 1:2 35.000.- ISK á mann á dag 
Fjöldi 1:3 25.000.- ISK á mann á dag

Innifalið í verði: Leiðsögn             
Ekki innifalið: Farartæki, matur, gisting, útbúnaðarleiga, uppihald leiðsögumanns í lengri ferðum                                                       















Mynd augnabliksins

modp1010723.jpg

Póstlistar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf