Þyrluskíðun á rætur sínar að rekja til Kanada þar sem fyrstu fyrirtækin á þessu sviði tóku til starfa á sjötta



áratugnum. Þyrluskíðun í Kanada snýst fyrst og fremst of ofgnótt lausamjallar, oft svo djúpri og mjúkri að manni líður
eins og maður sé hreinlega að skíða í hvítu skýi. Jökull Bergmann starfar sem leiðsögumaður hjá einu virtasta fyrirtæki
á þessu sviði Selkirk Tangiers Heli Skiing og bíður þér að
kíkja í heimsókn til Revelstoke BC og upplifa ógleymanlegt ævintýri.



STHS er staðsett í vinalegasta fjallþorpi Kanada, Revelstoke BC. Þar er nú í byggingu eitt umfangsmesta skíðasvæði Norður
Ameríku og nú þegar er þar í boði lengsta skíðabrekka heimsálfunnar í fallmetrum talið. Nánari upplýsingar um
þetta frábæra svæði er að finna á heimasíðu Revelstoke Mountain Resort.





