Það er óhætt að segja að okkar farsældar Frón beri nafn með rentu þegar það kemur að ís. Hér á
landi eru allar aðstæður með því besta sem gerist í heiminum til ísklifurs og hingað hafa flestir þekktustu klifrar heims komið til að
máta sig við Íslenska ísfossa. Tímabilið til ísklifurs er breytilegt en oft er hægt að byrja í október og klifra alveg fram í
maí í góðu ári. Þess fyrir utan er hægt að æfa öll grunnatriði og tækni í skriðjöklum allan ársins
hring.
Eins og áður sagði að þá erum við rík af rennandi vatni, köldu veðurfari og fjöllum sem er allt sem til þarf til að skapa
kjöraðstæður til ísklifurs. Hægt er að stunda ísklifur um allt land og sem dæmi má nefna að í innan við klukkustundar
akstursfjarlægð frá Reykjavík má finna um 100 ísklifurleiðir. Hvort sem þú villt prófa í fyrsta sinn eða skella
þér í ferðalag um landið í leit að óklifruðum leiðum að þá eru Bergmenn til þjónustu reiðubúnir.
Bergmenn sérhæfa sig í ísklifur leiðsögn og eru einu faglærðu leiðsögumenn landsins á því sviði. Ísklifur
ferðir falla í eðli sínu undir einkaleiðsögn sökum þess að aðeins 1-2 gestir eru í för með hverjum leiðsögumanni og
þörf er á miklum sveigjanleika í áætlunum sökum veðurs og aðstæðna.
Verð á einkaleiðsögn í ísklifri Ísland
Ekki innifalið: Farartæki, matur, gisting, útbúnaðarleiga, uppihald leiðsögumanns í lengri ferðum |