Fara í efni

Þyrluskíðun

Síðastliðin 25 ár hafa Bergmenn sérhæft sig í fjallaskíðaferðum á Tröllaskaga og nú í dag er svo komið að Tröllaskaginn er orðin heimsþekktur viðkomustaður fjallaskíðafólks víðsvegar að úr heiminum. En Bergmenn bjóða einnig uppá skipulagðar þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum undir merkjum Arctic Heli Skiing þar sem tækifærin til skíðunnar eru ótæmandi með hundruðum brekkna með fallhæð allt að 1500m sem er eins gott og það gerist á heimsvísu.

Skíðasvæðið sem opnast með aðstoð þyrlunnar er gríðarlega umfangsmikið eða tæpir 4000 ferkílómetrar beggja vegna Eyjafjarðar þar sem allar tegundir skíðabrekkna er að finna, allt frá bröttustu giljum til víðáttumikilla hvilftarjökla sem þýðir að allt skíðafólk finnur eitthvað við sitt hæfi. Það að skíða af hæstu tindum Tröllaskagans alveg niður í svartar sandfjörur í miðnætursól er einstök upplifun sem enginn má missa af að prófa þótt ekki sé nema einu sinni á lífsleiðinni. Skoðaðu frábærar myndir og video eða lestu greinar um þetta stórkostlega ævintýri hér.

Við byrjum að skíða á Tröllaskaganum um miðjan febrúar og vertíðin endist fram í lok júní í venjulegu ári með almennt frábæru vorskíðafæri og heilbrigðum fjölda púðurdaga. Vegna þess að Tröllaskaginn er strandfjallgarður eru snjóalög þar þykk og að sama skapi stöðug hvað varðar snjóflóðahættu þegar líða tekur á vorið. Þetta þýðir að við getum skíðað brattari brekkur en gengur og gerist í þyrluskíðamennsku annarsstaðar í heiminum. Veðurfar á Tröllaskaga í apríl og maí er tiltölulega stöðugt á Íslenskan mælikvarða með löngum stillum og sólríkum dögum. Þótt að það geti gert slæm veður að þá vara þau yfirleitt ekki lengi og með löngum dögum vorsins er hægt að skíða nánast 24 tíma á sólarhring.

Allar frekari upplýsingar um þyrluskíðaferðir bjóðum við þér að skoða á heimasíðu okkar Arctic Heli Skiing

Þyrluknúin-fjallaskíðun

Byrjaðu fjallaskíðadaginn á toppnum. Fjallaskíðun með smá aðstoð þyrlu í byrjun dags opnar ótalmarga möguleika á tindum og þverunum sem allar eiga það sameiginlegt að bjóða upp á frábærar brekkur og enda aftur á byrjunarreit.
Lesa Meira

4 & 6 Daga Þyrluskíðapakki

Skíðasvæðið sem opnast með aðstoð þyrlunnar er gríðarlega umfangsmikið beggja vegna Eyjafjarðar þar sem allar tegundir skíðabrekkna er að finna, allt frá bröttustu giljum til víðáttumikilla hvilftarjökla.
Lesa meira

Dagsferð í þyrluskíðun

Hvað gæti verið betra en að dekra við sig með degi í þyrluskíðun á Tröllaskaga. Hér eru einhverjar lengstu skíðabrekkur landsins eða allt að 1.300 metra fallhæð og engin ástæða til að leita langt yfir skammt til að upplifa draumadaginn. 
Lesa Meira